150. löggjafarþing — 138. fundur,  3. sept. 2020.

um fundarstjórn.

[21:20]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við atkvæðagreiðslu um afbrigði í dag sagði ég nei. Síðan var haldinn fundur og skýringarnar komu. Þær voru alveg fullnægjandi fyrir mig. Þess vegna sagði ég já núna. Þetta var misskilningur. Ég hef ekki orðið var við neitt annað en að þarna hafi hreinlega orðið misskilningur. Við verðum að átta okkur á því að á þeim hraða sem við erum búin að vinna hérna getur orðið misskilningur af þessu tagi. Hann hefur verið leiðréttur. Þess vegna segi ég: Þetta er bara búið mál.