150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

framkvæmd samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[10:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég minni hæstv. ráðherra á hversu svakalega erfiðlega gekk að fá meiri hlutann í þinginu til að fallast á að sett yrðu inn ákvæði, þegar verið var að samþykkja þennan sáttmála og afgreiða hann, til að tryggja að ríkið færi ekki í að greiða fyrir borgarlínuna nema staðið yrði við ákveðna hluti aðra, og þá sérstaklega Sundabraut og ákveðin gatnamót hér í bæ. Það var nánast ómögulegt, og á endanum tókst það ekki alveg, að fá meiri hlutann til að fallast á þetta skilyrði. Það hlýtur einfaldlega að hafa verið vegna þess að ríkisstjórnin, a.m.k. hluti hennar, hafi gert sér grein fyrir því frá upphafi að borgin myndi aldrei standa við sitt, ekki frekar en hún hefur gert undanfarna áratugi. Því þarf skýr svör frá hæstv. fjármálaráðherra um að hann muni ekki sætta sig við slíkt af hálfu borgarinnar og það þarf viðbrögð. Það er ekki nóg að segja: Við höldum bara áfram og stofnum þetta félag og vonandi mun þingið einhvern tímann í framtíðinni leysa úr málinu. Þessi viðbrögð borgarinnar kalla á viðbrögð hæstv. ráðherra.