150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

framkvæmd samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[10:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það mun ekki standa á mínum viðbrögðum þegar á þetta reynir. Nú er staðan sú að við ætlum í þessum mánuði að ljúka formlega við stofnun félagsins. Þá flytjast þangað inn til stjórnarinnar, inn á vettvang félagsins, fjölmörg úrlausnarefni og áfram munu samgönguráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd þingsins hafa önnur álitamál sem hafa snertifleti við þetta félag til úrlausnar hjá sér. Við vitum í grófum dráttum hver þessi stóru verkefni eru varðandi umferðarmannvirkin. Við þekkjum t.d. Bústaðaveginn og gatnamótin þar. Sundabrautin hefur verið nefnd hér. Við þekkjum verkefni á Hringbraut, Miklubraut og fjölmörg fleiri mætti nefna til sögunnar. Það er algjört lykilatriði að þegar þingið hefur veitt fjármagn til að fara í framkvæmdir og greiða úr umferðarhnútunum á höfuðborgarsvæðinu ætlumst við til þess að málin hafi einhvern framgang.