króna á móti krónu skerðingar.
Virðulegur forseti. Þann 27. ágúst sl. í andsvari kl. 14:16, sagði hæstv. fjármálaráðherra: „Og varðandi krónu á móti krónu þá erum við ekki lengur með það fyrirbæri eftir nýjustu breytingar.“
Ég spyr: Er þetta rétt hjá honum? Veit hann ekki betur? Það var samþykkt í vor króna á móti krónu í búsetuskerðingar, króna á móti krónu. Hjá þeim sem hafa það verst eru búsetuskerðingar. Það furðulega var að ríkið var tilbúið að borga 30–40 milljónir til að búa til krónu á móti krónu kerfið. Það hefði getað sparað sér 30–40 milljónir við að sleppa þessu. Þannig að króna á móti krónu er inni.
Það segir einnig í þessu sama andsvari, orðrétt: „En við eigum enn eftir að ljúka umbótum á bótakerfi örorkulífeyrisþega.“ Þar eru 65 aurar á móti krónu. Með 65 aurum á móti krónu er verið að safna tugmilljónum króna til að láta öryrkja borga sjálfa fyrir krónu á móti krónu leiðréttinguna. Þetta hefur varað núna í fjögur, fimm ár. Eldri borgarar hafa fengið þetta en öryrkjar ekki. Þið eruð þegar komin með tugi milljóna og þegar þið ætlið loksins að taka krónu á móti krónu skerðingu af öryrkjunum eigið þið fyrir því í fimm til tíu ár. Þá eru öryrkjarnir bara sjálfir að borga þetta. Ég spyr: Er það boðlegur málflutningur að segja bara rangt frá í þingsal? Þið samþykktuð þetta sjálf. Ég spyr ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér að við eigum að stoppa þessa krónu fyrir krónu og spara ríkinu þær 30–40 milljónir sem þetta kostar.
(Forseti (SJS): Forseti minnir á að beina máli sínu til forseta og ávarpa menn ekki í 2. persónu.)