króna á móti krónu skerðingar.
Virðulegi forseti. Við höfum í mörg ár hér í þinginu rætt um það fyrirkomulag í örorkubótakerfinu að tiltekin réttindi skerðist krónu fyrir krónu þegar menn hafa tiltekna tekjustofna. Hv. þingmaður stóð rétt áðan í þeim sporum þar sem ég stend núna og tók fram að sú regla ætti ekki lengur við. Hún hefur færst niður í 65 aura á móti krónu. Þannig er það. Það voru orð hv. þingmanns að það væri 65% skerðing (Gripið fram í.) en ekki lengur króna. (Gripið fram í.) Það er reglan sem um öll umræða um krónu á móti krónu hefur snúist og hún hefur verið aflögð. Það þýðir ekkert að koma síðan þegar við höfum framkvæmt það verk og tala um að í einhverjum öðrum kerfum, í einhverju öðru samhengi gildi króna á móti krónu skerðing, sem er bara allt annað mál. Það er allt annað mál.
Og hver er þessi króna á móti krónu skerðing? Það var viðleitni þáverandi ríkisstjórnar til að teygja sig til þeirra sem höfðu allra, allra minnst með því að nota takmarkað fjármagn. Þá var hægt að búa til réttindaflokk sem var eingöngu fyrir þá sem höfðu ekkert annað. Eftir því sem fólk hafði einhverjar aðrar tekjur þá skertist það krónu fyrir krónu. Það var leið til þess að teygja sig til þeirra sem stóðu veikast. Ég spyr: Er það slæm aðferðafræði, hv. þingmaður? Ég veit ekki til þess að nokkru máli hér í þinginu hafi nokkurn tímann verið snúið jafn rækilega á hvolf eins og þeirri viðleitni Jóhönnu Sigurðardóttur á sínum tíma að teygja sig til þeirra sem höfðu allra minnst. Til þess var farin leið krónu á móti krónu þannig að sá sem væri neðst í tekjustiganum fengi allra mest af takmörkuðum gæðum. En þessu er öllu snúið á hvolf og látið sem svo að verið væri að taka af því sama fólki. Þetta er algjört rugl.