150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

króna á móti krónu skerðingar.

[10:44]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég lít þannig á að hv. þingmaður hafi staðfest það sem ég var að nefna hér áðan. Hann er að tala um annað kerfi, aðrar skerðingarreglur, allt aðrar reglur en þær sem hafa verið kjarninn í umræðu um krónu á móti krónu kerfið sem hefur verið aflagt. Við erum núna með það sem mætti kalla 65 aura á móti krónu. Kjarninn í allri umræðu um tekjutengd kerfi ætti að snúast um það hvort það er skilvirk leið, hvort hún er sanngjörn, vegna þess að hún felur einfaldlega í sér viðleitni til þess að koma sem mestu af takmörkuðum fjármunum til þeirra sem hafa minnst. Hv. þingmaður orðaði það þannig að verið sé að setja krónu á móti krónu skerðingar á þá sem standa veikast. Þessu er einmitt öfugt farið. Eftir því sem fólk hefur hærri tekjur annars staðar frá þá skerðist rétturinn til að fá þennan tiltekna bótaflokk. Þannig er þetta hugsað. Svo getum við tekist á um það hvort nægum fjármunum sé ráðstafað í viðkomandi bótaflokk, hvort ekki eigi að hækka bæturnar o.s.frv. En tekjuskerðingar tel ég almennt vera ágætisleið til að stýra takmörkuðu fjármagni til þeirra sem eru í mestri þörf.