staða sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er gott að taka umræðu hér um stöðu sveitarfélaganna. Við höfum nýlega fengið í hendur skýrslu og greiningu og búið er að smíða líkan sem við ætlum að halda áfram að uppfæra til að geta vegið og metið stöðu sveitarfélaga. Þau geta líka notað það líkan til að vega og meta sína stöðu innbyrðis.
Það er ljóst að við höfum í sjö ár verið á hagvaxtarskeiði. Jöfnunarsjóður er til að jafna ólíka stöðu sveitarfélaga en hún er mjög ólík í þeim tæplega 80 sveitarfélögum sem eru á landinu. Þessi skýrsla afhjúpar og sannar það sem við vissum hvað þau efni varðar. Það hefur enginn tekið ákvörðun um að skerða sjóðinn, hann fær sínar tekjur m.a. sem hlutfall af heildartekjum ríkissjóðs og hann stækkar og minnkar eftir því hvernig árferðið er á Ísland. Hann hefur vaxið í sjö ár. Í þessari sjö ára hagvaxtarsveiflu hefðu sveitarfélögin átt að geta undirbúið sig, það getur enginn búist við því að slíkur hagvöxtur haldi áfram endalaust. Enda kemur í ljós að staðan er ólík. Í skýrslunni kemur fram að sveitarfélögin hafa tapað rúmlega 30 milljörðum, sem er mjög há tala, en þau geta sum gengið á eigið fé að einum þriðja, 10 milljörðum, en önnur geta farið í lántökur. Það er rétt hjá hv. þingmanni að sum sveitarfélög geta það ekki.
Við erum einfaldlega í samtali við Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin um hvernig skynsamlegast sé að nálgast aðstoð við sveitarfélögin til að tryggja að þau geti þjónustað viðkvæma hópa. Málefni fatlaðs fólks eru þar í forgrunni en þeir hópar sem hv. þingmaður nefndi eru það einnig og ég minni á að þingið samþykkti (Forseti hringir.) t.d. fjárveitingar til slíkra hluta í fjárauka nú í vor.