afgreiðsla frumvarps um hlutdeildarlán.
Herra forseti. Þetta er, eins og hér hefur skýrt komið fram, í fyrsta lagi efnislega risastórt mál. Það breytir einfaldlega töluvert miklu hvort kveðið er á um það í lögum eða reglugerð hver fái að kaupa íbúðir og hvort það er kveðið á um það yfir höfuð að maður þurfi að hafa kauptilboð tilbúið til að fá þá miklu fyrirgreiðslu sem lögin kveða á um. En mig langar til þess hér í þingsal að beina athyglinni að vinnubrögðunum. Ég er á þessu áliti og það er ekki látið svo lítið að taka upp símann til að láta vita að jú, það á að koma inn önnur breytingartillaga, ekki sú sem beðið var um gott orð fyrir af því að hún var bara tæknilegs eðlis og skipti engu máli heldur þessi efnislega. Ég get alveg sagt það miðað við þau vinnubrögð sem meiri hluti velferðarnefndar hefur stundað á þessu kjörtímabili að það frýs fyrr í helvíti en að ég trúi því að þetta hafi verið óvart. Þetta eru óboðleg vinnubrögð.