afgreiðsla frumvarps um hlutdeildarlán.
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Vilhjálm Árnason hvernig hann sjái fyrir sér að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eigi að samþykkja umsókn um lán fyrir ótilgreindri fjárhæð, að 20% hlut í íbúð sem ekki er vitað hvað kostar, með veði í eign sem við vitum ekki hver er. Ég átta mig ekki á því á hvaða vegferð stjórnarliðar eru þegar þeir halda að þetta geti gengið. Það er ekki hægt að sækja um lán í einhverju sem er ekki staðfest. Það er bara ekki þannig sem það gengur fyrir sig. Það er öðruvísi þegar verið er að sækja um úthlutun félagslegra íbúða eða sækja um námslán. Hér er verið að tala um lán fyrir 20% af verði með veði í ákveðinni fasteign. Nei? Jú, (Forseti hringir.) við erum að tala um það, þetta gengur út á það. Þetta er ekki bara samþykki fyrir láni í einhverju ótilgreindu. Við erum með þak (Forseti hringir.) á fjármagninu sem ætlað er að nota í þetta úrræði.