150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

afgreiðsla frumvarps um hlutdeildarlán.

[11:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það er eitt áhugavert sem þetta mál upplýsir fyrir öllum og það er að stundum vita þingmenn ekkert um hvað þeir eru að greiða atkvæði. Það er kaldhæðnislegt en rétt, þannig er það. Hér fór ekki fram nein efnisleg umræða um efnislegt atriði. Það er mjög algengt að það sé beðið um leyfi fyrir ákveðnum tæknilegum atriðum eða ef það er beðið um smávægilegar efnislegar breytingar er kannski útskýrt hverjar þær eru og svo er sent til nefndarinnar hverjar þær voru þó að það sé kannski búið að taka málið út o.s.frv. Það var atkvæðagreiðsla í gær þar sem allir nema þingflokkur Pírata greiddu atkvæði með þessum breytingartillögum. Við greiddum ekki atkvæði því að við vorum ekki alveg viss um hvað væri í gangi, þetta var ekkert á atkvæðagreiðsluskjölum, eins og var sagt. Þá velti ég fyrir mér: Hverja lét hv. þingmaður vita af þessari breytingu? Ef allur meiri hlutinn greiddi atkvæði með henni, vissi hann um hvað hann var að greiða atkvæði?