150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

afgreiðsla frumvarps um hlutdeildarlán.

[11:37]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst, magnað er kannski ekki alveg orðið yfir það, en með miklum ólíkindum að hlusta á það sem hér hefur gerst og langar að fá að vísa í fyrra starf mitt. Ef það myndi einhvern tímann gerast í málflutningi fyrir dómi að fram væru komin einhver gögn án þess að menn vissu af þeim og að um þau væri dæmt eru svo absúrd vinnubrögð að ég næ eiginlega ekki utan um það. Ég held að það hljóti að verða niðurstaðan hér, fyrir utan það að augljóslega verður afleiðingin sú að allt traust á verklagið verður vægast sagt minna ef það er þá ekki brostið, að fram komi frumvarp þar sem þetta er leiðrétt og að þingmenn fái a.m.k. tækifæri til að greiða atkvæði um gögn sem þeir vita hvað í felst.