150. löggjafarþing — 139. fundur,  4. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[14:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Allar þær aðgerðir sem hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir taldi upp eru til bóta. Það er hins vegar ámælisvert, og hreinlega til skammar, að í frumvarpinu er ekki einn stafkrókur um fólkið sem verst er sett, þ.e. þá 12.000 einstaklinga sem þurfa að framfleyta sér á grunnatvinnuleysisbótum. Þeir eru ekki nefndir á nafn af stjórnarliðum. Sennilega þykja stjórnarliðum atvinnuleysisbæturnar fullgóðar fyrir þann hóp sem þarf að framfleyta sér á 243.000 kr. eftir skatt. Það finnst mér, herra forseti, vera til mikils vansa fyrir ríkisstjórnina og fyrir stjórnarliða að koma svona fram við þennan hóp. Og hana nú.