breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Herra forseti. Myndin er að skýrast. Það er ekki lengur þannig að við séum í þeirri stöðu sem við vorum í í vor. Spá Seðlabankans liggur fyrir. Við höfum álit og umsögn fjármálaráðs. Myndin er að skýrast. Það er blessunarlega þannig að í þessari erfiðu og þungu stöðu, sem felur í sér þungt og óskaplega ójafnt högg, eru samt þau jákvæðu teikn á lofti að ástandið varir kannski stutt. Í því ljósi er það ekki bara hjartað í manni, eða þessi mannlegu viðbrögð að vilja bregðast við, sem veldur því að maður vill brúa þetta bil fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu heldur er það efnahagslega ábyrgt. Mér finnst það umhugsunarvert að ekki sé hlustað á rök sérfræðinga sem taka þátt í þjóðmálaumræðunni þó að ekki sé hlustað á fólk hér í þessum sal. Það er umhugsunarvert að vilja ekki fara þá leið sem er efnahagslega ábyrg; að ætla að brúa bilið fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu.