150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

afbrigði.

[14:20]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Svo háttar til um öll dagskrármálin að of skammt er liðið frá útbýtingu þingskjala í þeim. Þarf því að leita samþykkis fyrir því að taka þingskjölin á dagskrá og fer nú fram atkvæðagreiðsla um afbrigði.

Óskað er eftir því að greidd verði sérstaklega atkvæði um afbrigði fyrir 3. dagskrármálinu og er sjálfsagt mál að verða við því. Þannig að sú atkvæðagreiðsla sem nú er hafin er afbrigði fyrir 1. og 2. dagskrármálinu, þ.e. frumvörpum um fjáraukalög og ríkisábyrgðir, sem eru stjórnarfrumvörp, að þau megi koma fyrir fundinn þótt of skammt sé liðið frá því að skjölum var útbýtt.