150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

fjáraukalög 2020.

969. mál
[15:07]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar aðeins að fara yfir þetta. Eins og ég sagði vonast ég til að aldrei reyni á að það þurfi að veita þetta lán. En það mun kosta félagið að draga á lánalínurnar. Það bætist við kostnaður fyrir það að nýta lánið.

Varðandi bankana þá eru þeir í bankastarfsemi en ekki í flugrekstri og þeir hafa auðvitað veð fyrir því sem þeir lána. Ég myndi halda að staða þeirra væri nokkuð tryggð vegna þess að þeir lána ekki bara út í loftið. Og um það: Það er annað skjal sem í eru skilmálar félagsins gagnvart bönkunum. Það er reyndar ekki fylgiskjal með þessu frumvarpi en skilmálana má til að mynda nálgast á vef fjármálaráðuneytisins til að kynna sér frekar hvernig bankahlutinn virkar.