fjáraukalög 2020.
Frú forseti. Já, þetta er mjög áhugavert sem þingmaðurinn segir. Ég er einmitt að nálgast málið út frá hagsmunum skattgreiðenda. Ég er í alvörunni að reyna að tryggja betur hag skattgreiðenda ef í óefni stefnir, sem ég vona að sjálfsögðu að verði ekki. Ég er að reyna að auka tryggingavernd gagnvart skattgreiðendum sem ég veit að hv. þingmanni er umhugað um. Ég tek alveg undir það. Við sjáum hverjir eru að fara að endurreisa þetta félag. Það eru lífeyrissjóðirnir sem fara með fé skattgreiðenda og almennings. Það eru ríkisbankarnir sem við eigum og nú er það ríkisaðstoðin. Við höfum líka verið að greiða í hlutabótaleið sem og uppsagnarleiðina sem Icelandair hefur líka verið að nýta sér. Skattfé er allt um kring, það er alveg hárrétt. Hvernig væri að íhuga það að skattgreiðendur gætu þá fengið eitthvað fyrir þessa aðstoð annað en að tryggja starfsemina? Ég ætla ekkert að gera lítið úr því, það skiptir höfuðmáli. En af hverju getum við ekki verið samferða, til hægri og vinstri, í því að auka tryggingavernd almennings ef hlutirnir fara á versta veg sem við vonum að gerist ekki, (Forseti hringir.) og vonandi reynir ekki á það.