150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

fjáraukalög 2020.

969. mál
[16:25]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vera nokkuð skýr í afstöðu sinni. Mér hefur ekki endilega þótt það einkenna alla sem hér hafa talað um hvernig og hvort þeir telji að það beri að veita ríkisábyrgð. Ég þakka hv. þingmanni fyrir það. Það getur að sjálfsögðu bara verið ég en ég verð samt að segja að mér finnst ekki alveg fara saman það sem hv. þingmaður fór með hér í pontu og er að finna í nefndaráliti 2. minni hluta og svo það sem finna má í yfirlýsingu þingflokks Pírata sem send var fjölmiðlum í dag. Með leyfi forseta, segir í nefndarálitinu:

„Fyrirkomulag ríkisábyrgðarinnar og uppsetning hlutafjáruppboðsins lítur vel út. Áætlun Icelandair lítur vel út. Rökin eru sannfærandi. Þau eru svo sannfærandi að það ætti ekki að þurfa ríkisábyrgð. Trúnaðargögn sem fjárlaganefnd hefur fengið staðfesta áætlanir Icelandair og næmnigreiningar þeirra áætlana líta vel út.“

Í yfirlýsingunni segir hins vegar, með leyfi forseta:

„Endurreisnaráætlun Icelandair byggir á hæpnum forsendum [...] Gloppurnar í sviðsmyndagreiningu félagsins eru svo stórar að það er alls óvíst að skuldahola Icelandair muni grynnka nokkuð næstu árin.“

Ég verð að segja, forseti, að ég fæ þetta ekki alveg til að koma heim og saman. Mér finnst verið að segja heitt öðrum megin og kalt hinum megin. Niðurstaða hv. þingmanns sem skrifar undir báðum megin er sú sama en mér finnst hann beita algerlega andstæðum rökum til að komast að þeirri niðurstöðu. Mig langar því að biðja hv. þingmann að útskýra þetta aðeins fyrir mér.