fjáraukalög 2020.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Geirneglt, segir hann. Nei, það kemur hvergi nokkurs staðar fram í tilvitnuðum texta í lögskýringargögnum að það sé um Icelandair að ræða. Það er talað um flugrekstur félags sem flýgur til og frá landinu. Nú skulum við bara tala um það að inni í Icelandair Group er dótturfélag sem heitir Air Iceland Connect sem flýgur til og frá landinu og það er þar sem ég setti niður fótinn. Það er ekki þar sem ég tel kerfislega mikilvægt fyrir okkur að stíga inn og þessi svokölluðu lögskýringargögn heimila nákvæmlega það, nema hv. þingmaður geti bent mér á eitthvað annað. Ef svo er skal ég vera fyrst til að kokgleypa það að tekinn sé af allur vafi að hér sé einungis um Icelandair að ræða.