fjáraukalög 2020.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þakka honum líka fyrir að hafa nefnt hér í fyrsta lagi Air Iceland Connect og tekið af allan vafa um það sem ég var að segja. Í öðru lagi, hvað varðar hlutabréfakaup íslenska ríkisins í fyrirtækjum á markaði, þá er hér um að ræða undanþágu frá meginreglunni eins og ég kom réttilega inn á. Þó að meginreglan sé sú að við eigum ekki að koma nálægt því, íslenska ríkið, að fjárfesta á hlutabréfamarkaði þá erum við í þessu tilviki eingöngu að gera það vegna þess að hér er um kerfislega mikilvægt fyrirtæki að ræða sem talið er varða almannaheill að við höldum gangandi. Svoleiðis hef ég skilið það allan tímann og þannig vildi ég styðja það. Við þurfum vonandi ekki að horfa upp á það að nýta lánalínuna því að þá bendir það til þess að fyrirtækið sé endanlega komið á hausinn hvort eð er. Ef til þess kemur, þá held ég að ég vildi frekar sjá að við gætum reist það upp á (Forseti hringir.) gömlum traustum grunni og horft til þess sem t.d. er verið að gera og hefur áður verið gert í Þýskalandi og á fleiri stöðum (Forseti hringir.) þegar ríkisstjórnir koma að því að bjarga flugfélögum í vanda.