150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

fjáraukalög 2020.

969. mál
[18:22]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum hér í einu lagi tvö mál, annars vegar frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir, um að víkja frá þeim lögum, og hins vegar um frumvarp til fjáraukalaga, sérstaka heimild til handa ráðherra að veita slíka ábyrgð. Hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, framsögumaður nefndarinnar í málinu, fór afar vel yfir álit meiri hluta nefndarinnar. Ég vil fyrst og fremst koma hér og þakka framsögumanni góða og vandaða framsögu og þakka henni fyrir að halda vel á mjög vandasömu máli.

Ég segi vandasömu máli vegna þess að það er ekki sjálfsagt mál að samþykkja slíka heimild og á aldrei að vera. Í það minnsta verða að vera mjög ríkir almannahagsmunir sem liggja þar að baki. Í gegnum okkar vinnu í hv. fjárlaganefnd kom fram að mikil vinna hefur átt sér stað í marga mánuði og félagið hefur á sama tíma, eins og nánast öll önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu, þurfti að heyja sína tilvistarbaráttu.

Virðulegi forseti. Hér eru sannarlega gífurlegir hagsmunir í húfi hvað varðar viðspyrnuna sem hér þarf að verða. Það eru gífurlegir hagsmunir fyrir íslenskt hagkerfi og fyrir íslenskt samfélag, fyrir heila atvinnugrein, og í því öllu felast miklir almannahagsmunir. Valkostagreining leiðir í ljós að hér er valin sú leið sem felur í sér minnsta áhættu fyrir ríkissjóð og mér finnst það hafa verið rétt ákvörðun með tilliti til áhættu að fara þessa varfærnu leið. Þar skiptir sköpum að vinna frá byrjun með skýrar forsendur fyrir mögulegri aðkomu ríkisins. Ég ætla ekki að tiltaka þær, þær koma fram í nefndaráliti og framsögumaður nefndarinnar, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, fór afar vel yfir þann þátt. Ég tel mikilvægt að skilmálar ábyrgðarinnar fylgi með nefndarálitinu og nefndin beitti sér fyrir breytingu vegna samkeppnissjónarmiða sem ég met að séu mjög mikilvæg um að afmarka lántöku við flugrekstur til og frá landinu eins og þar segir.

Ég þarf ekki að fjölyrða um þann rökstuðning sem hv. framsögumaður rakti hér, og hefur sömuleiðis komið fram í ræðum margra hv. þingmanna, að öllu máli skiptir að fyrirhugað hlutafjárútboð, og þá segi ég það með tilliti til þeirrar leiðar sem er valin, gangi eftir. Ég styð þann vilja að bakka félagið upp til þrautavara eins og við erum raunverulega að gera ef áætlanir ganga ekki eftir, þá er ég að tala um rekstraráætlanir. En við eigum allt undir því að viðspyrna náist og heimurinn taki að ferðast á ný. Það er hin hliðin, við vonumst öll til að svo verði og það reyni ekki á þennan stuðning. Það þýðir einfaldlega að hagkerfið hjarni við og er alger forsenda þeirrar viðspyrnu sem við ætlum öll að vera tilbúin í þegar sú stund kemur. Það er auðvitað í takt við þá leið sem við veljum hér.

Þessari lántöku er ætlað að skapa aukið rekstraröryggi. Það ætti að hafa jákvæð áhrif á vilja fjárfesta í fyrirhuguðu hlutafjárútboði. Þá gengur þessi leið, eins og hún hefur verið kölluð: síðust inn og fyrst út, fyrir ríkissjóð. Ég vil segja það hér að mér finnst það koma nokkuð skýrt fram hér í 2. umr. og í máli flestra hv. þingmanna að þeir styðji þetta mál út frá almannahagsmunum og út frá því hve kerfislega mikilvægt það félag er sem við ræðum um heimild til handa.