150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

fjáraukalög 2020.

969. mál
[18:40]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Hér er um risamál að ræða. Við erum að ræða ríkisábyrgð á einkafyrirtæki. Þegar slík mál eru sett fram hér í þinginu eru þau ekki sjálfgefið mál. Ég segi það alveg skýrt: Ef ekki væru þessar aðstæður væri ég varla að koma hingað upp í pontu til að útskýra afstöðu mína. Það væri einfaldlega: Nei. En ég get ekki leyft mér að haga mér þannig því að aðstæður eru með þeim hætti að við verðum að fara kerfisbundið yfir það hvernig við nálgumst málið. Það er ekki hægt að afgreiða það með hreinu nei, bara út frá því sjónarmiði að ríkið eigi ekki að hlaupa undir bagga með einkafyrirtæki. Við gerum það vegna þessara sérstöku, fordæmalausu aðstæðna og okkur þingmönnum, bæði í stjórn sem stjórnarandstöðu, ber skylda til að gera það.

Það er margt hægt að draga fram varðandi málið. Ég vil draga það fram, þannig að fólk skilji, að ríkisstjórnin og ríkisstjórnarmeirihlutinn hafa verið með málið í meira en fimm mánuði. Þingmönnum, sérstaklega úr stjórnarandstöðu, hafa gefist örfáir dagar til að fara yfir gríðarlega stórt og mikið mál sem tengist þjóðhagslega mikilvægri virkni sem við þurfum að halda á lífi. Við þurfum að hafa tilbúið flæði inn og út úr landinu. Það er í ládeyðu núna. Við vorum bara að heyra að í dag hafi Icelandair aflýst um 17 eða 18 flugum og það lýsir mjög vel ástandinu.

Við í Viðreisn höfum verið að kynna tillögur okkar til að bregðast við kreppunni, þeim gríðarlega bráðavanda sem steðjar að núna. Við höfum gagnrýnt ríkisstjórnina og ekki bara fyrir það að hafa ekki viljað eiga samtal við okkur, samtal við þjóðina, um það af hverju hún fer leiðir í ákvarðanatöku sinni sem hafa gríðarlega miklar afleiðingar í för með sér. Hún hefur heldur ekki komið með nægilega skýrar efnahagsaðgerðir fyrir fólkið okkar og fyrirtækin til að bregðast við og vera ákveðið mótvægi við mjög harðar sóttvarnaaðgerðir. Lokunin á landamærunum 15. ágúst hefur einmitt áhrif, m.a. á þetta mál. Stakkur ríkisins verður þrengra sniðinn. Möguleikum okkar fækkar fyrir vikið. Undir eins og ríkisstjórnin sagði A kom sjálfkrafa B. Það er líklegra en hitt að það þurfi að fara einhverja slíka leið varðandi ríkisábyrgð, að horfa til Icelandair. En það er hins vegar ekki sjálfgefið og ég hef reynt að fara yfir það kerfisbundið með sjálfri mér hvernig hægt er að réttlæta það að vera a.m.k. ekki á móti þessu máli.

Eins og ég gat um áðan höfum við í Viðreisn undirstrikað mikilvægi þess að fara strax í aðgerðir sem réttlæta tímabundið aukin ríkisútgjöld. Það hjálpar fólki að halda í vonina og veitir því tækifæri til að koma af fullum krafti í viðspyrnuna sem vonandi hefst fyrr en síðar. Það sama gildir um fyrirtækin. Við sáum í sumar að viðspyrna í ferðaþjónustu var aðeins meiri en spár höfðu gert ráð fyrir og menn bundu vonir við. Ferðaþjónustan, þessi mikilvæga atvinnugrein, hefur sýnt að hún mun koma okkur fyrr en ella út úr þeim efnahagslegu erfiðleikum sem við munum standa frammi fyrir þessi misserin og næstu árin. Ferðaþjónustan mun leika þar lykilhlutverk. Það þýðir líka, alveg eins og við sáum í sumar, að við þurfum að vera tilbúin með fyrirtæki sem getur brugðist við ef til að mynda bóluefni finnst fyrr. Það er mjög líklegt að það verði ekki fyrr en upp úr miðju næsta ári miðað við nýjustu fréttir frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. En það kann líka eitthvað að rofa til fyrr. Þá finnst mér mikilvægt að við séum tilbúin og þá verðum við einfaldlega að horfa til Icelandair. Er það sjálfgefið? Nei, enn og aftur ekki. Við vitum til að mynda að Wizz Air á í erfiðleikum, félag sem hefur sinnt um 30.000–40.000 manna hópi fólks sem er búsett á Íslandi með því að fljúga til a.m.k. tíu mismunandi staða. Við vitum líka að það er fyrirtæki í undirbúningi, Play, sem gæti hugsanlega stokkið inn og gert eitthvað, a.m.k. til að byrja með, fyrir okkur Íslendinga eða fólkið sem býr hér.

Ég held að við megum ekki vanmeta hversu mikil þekking fylgir fyrirtækinu sem hefur ferðast með þjóðinni í ár og áratugi, hversu mikil þekking, mannauður og reynsla hafa byggst þar upp. Það er mikilvægt þegar við þurfum að fara strax af stað. Þá skiptir máli að hafa innviði. Icelandair er flokkað með kerfislæga mikilvæga innviði, einmitt til að ýta okkur sem fyrst út úr þeim efnahagslegu erfiðleikum sem við erum í og munum standa frammi fyrir á næstu misserum. Þar gegnir flugfélag mikilvægu hlutverki og hér erum við að ræða Icelandair.

Ég verð að segja að þegar við formenn stjórnarandstöðuflokkanna ásamt fjárlaganefnd fengum kynningu á málinu fyrir rúmlega viku síðan leist mér ekki mikið á blikuna. Þar var kynnt að leggja þyrfti til hliðar lög um ríkisábyrgð af því að þau hentuðu ekki umhverfinu sem við erum að fjalla um í dag, hentuðu ekki fyrirtækinu. Þá hljómuðu viðvörunarbjöllur. Af hverju að víkja til hliðar formreglum? Formreglur, eins leiðinlegar og þær geta verið, þjóna almannahagsmunum með því að veita ákveðið öryggi. Það er verið að fylgja eftir reglum sem gæta almannahagsmuna. Það er verið að spyrja eðlilegra spurninga um greiðsluhæfi fyrirtækja, greiðsluhæfi skuldara, í þessu tilviki Icelandair. Það er verið að athuga hvort ríkisábyrgðin, sem hugsanlega á að veita, ruggi nokkuð bátnum þegar kemur að samkeppni. Þegar slíkum reglum er vikið til hliðar — ekki síður vegna slæmrar reynslu okkar Íslendinga þegar við höfum veitt ríkisábyrgð — hefur það sýnt sig að það hefur ekki gefist sérstaklega vel. Þess þá heldur hljóma ákveðnar viðvörunarbjöllur. Þær segja mér að þetta tiltekna tilvik geti væntanlega ekki uppfyllt ströng skilyrði, formreglur laga um ríkisábyrgð og þá þarf að vanda sérstaklega til verka. Þá þýðir ekki að ríkisstjórnin, eftir að hafa gruflað í þessu í meira en fimm mánuði, hendi málinu til okkar og segi: Það þarf að afgreiða þetta kviss, búmm, bang, einn, tveir og þrír. Það er á slíkum stundum sem við sjáum hversu mikilvægt aðhaldshlutverk stjórnmálanna, stjórnarandstöðu og þingsins í heild, er. Ég vil leyfa mér að hrósa sérstaklega vinnu fjárlaganefndar í málinu. Það er verið að fara mjög vandlega yfir margar ábendingar tengdar málinu sem ég kem með hér og sem hefur verið beint til nefndarinnar. Það hefur ekki verið komið til móts við þær allar en mjög margar. Og það er verið að taka á áhyggjum sem fólk eðlilega hefur varðandi þetta erfiða skref.

Mér finnst ekki enn hafa komið fram nægilega skýr svör við því af hverju lögum um ríkisábyrgð er vikið til hliðar. Það einkennir líka málið, og í raun öll mál sem við tengjum við Covid, að ríkisstjórnin gengur ekki hreint til verka. Hún segir ekki hlutina einfaldlega eins og þeir eru. Það er miklu meiri bragur á því að segja fólki af hverju aðstæður eru erfiðar, af hverju hlutirnir eru svona og hinsegin frekar en að reyna að fela þá með einhverjum fyrirslætti. Dæmi um það er til að mynda þegar við heyrum Sjálfstæðismenn ítrekað segja að ríkið komi ekki að málinu nema í gegnum þetta af því að einhverjir einkaaðilar úti í bæ eigi að leysa málið. Þeir líta á lífeyrissjóðina sem einkaaðila. Ég er ósammála því að hægt sé að líta á lífeyrissjóði launþega á Íslandi sem einkaaðila sem geti bara komið og reddað málum. Lífeyrissjóðir hafa verið settir í ákveðna spennitreyju. Það er sama hversu mikla afneitun menn reyna að fara í, þeir hafa verið settir í spennitreyju. Við Íslendingar erum eina þjóðin í heiminum sem hefur á tímum Covid sett á höft, ákveðin gjaldeyrishöft eða höft á fjárfestingu. Lífeyrissjóðunum er gert að fjárfesta hér heima og það er ekki mikið um fjárfestingartækifæri akkúrat núna. Þeim er beint í þennan farveg og þá verðum við einfaldlega að tala opinskátt um það. Viljum við að lífeyrissjóðirnir beri þessa ábyrgð? Viljum við að eftir einhver misseri — og við vonum að sjálfsögðu að ekki fari illa — verði samt hugsanlega umræða um að skerða þurfi lífeyrisréttindi ákveðinna lífeyrissjóðsþega af því að þessi ákvörðun var tekin? Er ekki hreinlegra að ganga hreint til verks og reyna að segja: Ríkið ber ábyrgð á þessu og skattgreiðendur, allir skattgreiðendur framtíðarinnar, bera ábyrgð á þessu í staðinn fyrir að leggja byrðarnar á lífeyrisþega og launþega landsins?

Þetta eru mínar vangaveltur um málið. Þar fyrir utan er náttúrlega bara kjánalegt að heyra þingmenn Sjálfstæðisflokksins, ekki síst, koma hér í sálarangist sinni og allt að því kreddufestu og segja: Nei, ríkisbankarnir eru bara sjálfstæðir bankar úti í bæ. Við vitum alveg að ríkið á Landsbankann og Íslandsbanka. Þeir ábyrgjast lánin, þeir sölutryggja upp að allt að 6 milljörðum. Allir landsmenn eiga bankana og það þýðir að ríkið kemur að málinu með beinum eða óbeinum hætti.

Ég vil gjarnan að við lítum til Norðurlandanna. Lítum til þess hvernig Danir og Svíar leystu sína aðkomu varðandi SAS. Nordea Bank og aðrir bankar höfnuðu til að mynda aðkomu að sölutryggingu og það var unnið með það. Það er alveg skýrt að þar stíga ríkin inn í og ef hlutafjárútboð þar gefast vel mun hlutur þeirra aukast lítt, en samt upp í um 35–37% og getur farið upp í allt að 80%. Ég velti því fyrir mér af hverju það er einfaldlega ekki sagt nákvæmlega hver aðkoma ríkisins er.

Ég vil líka vekja á því athygli að fyrst verið er að fara þá leið að leggja til hliðar lög um ríkisábyrgð, leggja til hliðar ákveðnar hugsjónalegar ástæður — ég get vel að merkja skilið að aðrar leiðir séu farnar núna með því að ræða ríkisábyrgð gagnvart Icelandair vegna aðstæðna — af hverju tölum við þá ekki um aðra og meiri almannahagsmuni tengda málinu og reynum þá að nýta þessa ferð til að leggja áherslu á til að mynda það að risafélag, sem við ætlum hugsanlega að veita ríkisábyrgð, fari eftir almennum siðareglum? Að það sprengi ekki í loft upp þær siðareglur, vinnureglur og samskiptareglur sem við höfum upplifað á vinnumarkaði á síðustu árum.

Ég hef sagt það áður að ég ætla ekki að taka afstöðu til kaupkrafna flugfreyja, flugstjóra o.s.frv. í kjarabaráttunni sem hefur verið. En mér féll ekkert sérstaklega vel þegar við erfiðar aðstæður átti að reyna að sprengja í gegnum þær reglur sem hafa gilt á vinnumarkaði. Mér fannst það ekki til mikils sóma. Ég velti líka fyrir mér, eins og til að mynda hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur farið svo ágætlega yfir, af hverju loftslagsmálin eru ekki nýtt og settar fram kröfur varðandi loftslagið og loftslagsvernd í ferð ríkisins með félaginu. Það er eins og ríkisstjórninni sé svolítið fyrirmunað, í öllum þeim bráðaaðgerðum sem við erum að fara í núna, að taka loftslagsmálin með. Ég hefði viljað sjá svipaðar leiðir, vinsamlegar ábendingar eða kröfur um að við færum svipaðar leiðir og Angela Merkel og ríkisstjórn hennar gagnvart Lufthansa, að við hefðum nýtt ferðina til að reyna að tikka í sem flest box almannahagsmuna.

Þá er ég komin að samkeppnismálunum. Það er alveg með ólíkindum að ríkisstjórnin — og þess vegna vil ég þakka vinnuna í fjárlaganefnd — hafi leyft sér að leggja málið fram án þess að hafa talað við Samkeppniseftirlitið eða fengið álit hjá því. Óttaðist ríkisstjórnin að það færi fyrir þessu máli eins og þegar Samkeppniseftirlitið sendi inn umsögn varðandi fjölmiðla og ríkisstjórnin gerði ekkert með hana þegar kom að því að greiða út styrki til fjölmiðla? Kannski þurfti að greiða styrki til þeirra fjölmiðla sem hvað dyggast styðja við bakið á ríkisstjórninni um þessar mundir. Eins og alltaf virðast samkeppnismálin ekki ofarlega á borði ríkisstjórnarinnar. Margir aðilar á markaði vöruðu við þessu, t.d. ferðaskrifstofur og þeir sem hafa m.a. rekið flugeldhús o.fl. Það hefði auðvitað komið strax upp hefði ríkisstjórnin verið reiðubúin í samtal um það hvernig hægt er að vinna málin vel. Af því að við viljum að þetta gangi upp. Við viljum að við séum tilbúin til að ná viðspyrnu þegar þar að kemur. Við þurfum öflugt flugfélag til að tryggja að ferðaþjónustan — af því hún er það hreyfiafl sem við þurfum á að halda til þess að að koma okkur út úr þeim efnahagslegu erfiðleikum sem við erum í — og allar stoðir séu til reiðu. Stærsta stoðin er auðvitað flugsamgöngur.

Ég horfi líka þannig á þetta mál að við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur í þessu skrýtna tímabundna ástandi til að veita súrefni til fólksins og heimilanna í landinu en líka til fyrirtækjanna, m.a. fyrirtækisins sem við höfum haft góða reynslu af. Og ég undirstrika að við þurfum að gæta að því að ekki er hægt að verðleggja það sem við fáum í gegnum mannauðinn, reynsluna og þekkinguna sem hefur byggst upp í áraraðir hjá fyrirtækinu.

Það er nokkuð lýsandi þótt það hafi verið einnar messu virði — og ég studdi það — að fara yfir aðstæðurnar þegar WOW fór á hausinn í fyrra en þá voru þær bara annars konar. Þá var flugélag látið fara. Það hefði líka gerst ef aðstæður hjá Icelandair hefðu verið þær sömu. Þá værum við ekki í þessari stöðu. Þá væri ég ekki að fara af rauða takkanum yfir í yfir á þann gula í málinu. Í ljósi þeirra aðstæðna sem við stöndum frammi fyrir er hægt að réttlæta að við ræðum þessi mál. En það er varla hægt að réttlæta hvernig ríkisstjórnin bjó um málið af sinni hálfu með tilliti til samkeppnissjónarmiða, almannahagsmuna sem m.a. eru tengdir loftslagsmálum, vinnumarkaðsmálum og öðrum málum. Mér finnst það ekki vel að verki staðið eftir allan þann tíma sem ríkisstjórnin hefur haft málið á borði sínu.

Í stað þess að ræða um að styðja félagið er það ekki hægt eins og málið liggur fyrir núna. Ég mun ekki standa gegn því í ljósi aðstæðna. Ég mun ekki standa gegn því í ljósi þess að ég tel málið hafa tekið jákvæðum breytingum undir forystu þeirra sem eru í fjárlaganefnd. Þar var spurninga spurt og að hluta til var þeim svarað. En það hryggir mig að sjá enn og aftur mál sem hefði getað verið svo miklu betur útbúið ef samtal og samráð hefði átt sér stað.

Enn og aftur sjáum við að ef við hefðum talað meira og betur saman hefðum við hugsanlega náð meiri samstöðu um svona mikið og stórt mál sem tengist því að við getum komist fyrr út úr þeim erfiðleikum sem við erum í og inn í viðspyrnu og uppsveiflu. Það hefur sýnt sig að stjórnarandstaðan hefur staðið sig vel. Hún hefur staðið sig í stykkinu og hjálpað til þegar allar hendur þurfti á árar. Hún hefur hjálpað til við að breyta vondum málum í skárri mál. Hún hefur hjálpað til við að styðja við góð mál og brýn sem hafa haft þýðingu fyrir fólkið og fyrirtækin. Það er hægt að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir margt en það þarf að bregðast við þessum aðstæðum og ég tel að málið hafi skánað. Það er nauðsynlegt að ræða það. Málið hefur skánað og batnað í meðförum þingsins. Ég vil draga það fram að það er löggjafarvaldinu að þakka að það er þó í betra formi en áður.