fjáraukalög 2020.
Herra forseti. Frá upphafi þeirra ófyrirséðu aðstæðna sem sköpuðust vegna heimsfaraldurs hafa efnahagsaðgerðir stjórnvalda miðað að því að standa vörð um atvinnu fólks. Það hefur m.a. verið gert með því að styðja við arðbær fyrirtæki og að arðbær fyrirtæki fari ekki í þrot vegna aðstæðna. Þetta mál sem við erum að fara að greiða atkvæði um, að veita Icelandair Group hf. sjálfskuldarábyrgð frá ríkissjóði, er svo sannarlega eitt af þeim málum. Vonandi kemur ekki til þess að það þurfi að nota þessa heimild en ef þess þarf þá er hér staðið að málum með þeim hætti að almannafé og áhætta ríkisins verði takmörkuð við það sem þjónar almannahagsmunum með skýrum reglum og skilyrðum. Þau skilyrði eru aðgengileg og allir geta kynnt sér þau (Forseti hringir.) og séð að hér fylgja skilmálar með ef á reynir.