150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

998. mál
[20:34]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er málið sem var komið á dagskrá í ósætti í gær. Það á að fá lífeyrissjóðina að borðinu með því að skattgreiðendur taka á sig mögulega 15 milljarða kr. ábyrgð til að minnka áhættuna af þessum gjörningi af því að þetta er áhættusamur gjörningur. En það dugir ekki til. Lífeyrissjóðirnir mega samt sem áður ekki taka þátt í þessum gjörningi nema að þessu lagafrumvarpi samþykktu sem leyfir þeim að verða áhættusæknari, taka meiri áhættu. Það þarf til, til þess að leyfa lífeyrissjóðunum að taka þátt í þessu. Það ætti að segja okkur svolítið um áhættuna af þessum gjörningi.