150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

tilkynning.

[20:36]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Ég undirrituð geri það að tillögu minni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta þingfundar verði:

1. Stjórn fiskveiða, frumvarp, 1000. mál, þskj. 1200. – 1. umr., ásamt öðrum dagskrármálum sem forseti Alþingis leggur til.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta bréf ritar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. Fer nú fram atkvæðagreiðsla um dagskrártillöguna.