150. löggjafarþing — 140. fundur,  4. sept. 2020.

tilkynning.

[20:36]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég er að leggja til að við setjum á dagskrá lítið mál sem hefur mikla þýðingu fyrir byggðir landsins og fyrir smábátasjómenn sem hafa óskað þess að um 350 bátar fái að stunda strandveiðar í september. Hér er frumvarpið. Það er einfalt. Það er stutt og laggott og það er hægt að ganga frá því í kvöld. Það inniheldur þá lagaheimild sem þarf til þess að veiða megi í september. Ég vil sérstaklega hvetja hæstv. sjávarútvegsráðherra, Kristján Þór Júlíusson, og hv. formann atvinnuveganefndar, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, til að greiða þessari dagskrártillögu atkvæði sitt og liðsinna strandveiðisjómönnum með því að heimila strandveiðar í september.