tilkynning.
Forseti. Frumvarpið er mjög einfalt. Það veitir ráðherra þá heimild sem hann segist ekki hafa; hann segir að hendur hans séu bundnar, að löggjafinn sé búinn að binda hendur hans og hann hafi ekki heimild til að heimila strandveiðar í september. Þá leysum við úr því. Frelsum ráðherra og leyfum honum að heimila strandveiðar í september. Það er það sem frumvarpið leyfir. Það er sagt: Ja, það er nú ekkert hægt að fara af stað með þetta núna. Jú, þetta er Covid-mál. Forseti þingsins lagði það fyrir þingið í gær að meta hvað væru Covid-mál. Ef þingið segir að málið megi fara á dagskrá þá er það Covid-mál. Enda sagði ráðherra líka við mig í óundirbúnum fyrirspurnum í dag að það væri ýmislegt sem hægt væri að túlka sem Covid-mál. Byggðir landsins sem eru í Covid-kreppu hafa gott af því að fá þá björg í bú að smábátasjómenn geti fært þeim fisk. Við erum bara að tala um að gera það innan sjálfbærnimarkmiða, það sem ekki var veitt á síðasta ári væri veitt í ár. Þetta er Covid-mál. Ef þingið samþykkir það getum við sett það á dagskrá og haldið áfram.
(Forseti hringir.) Auðvitað vitum við að það er enginn áhugi á því, en við erum í raun að stilla þessu upp svona þannig að ljóst sé að það er enginn áhugi fyrir því að gera þetta svona. (Forseti hringir.) Við viljum þetta. Það er nokkuð ljóst að ríkisstjórnin vill það ekki. En við skulum sjá atkvæðatöfluna hér rétt á eftir.