tilkynning.
Forseti. Við greiðum að sjálfsögðu atkvæði með þessu. Með þessu fáum við á dagskrá frumvarp sem heimilar strandveiðar í september, heimild sem ráðherra segist ekki hafa en hann mun fá ef það verður samþykkt. Í óundirbúnum fyrirspurnum í morgun ræddum við sjávarútvegsráðherra um þetta og hann sagði: Strandveiðisjómenn hafa veitt svo mikið (Gripið fram í.) en aðrir hafa veitt svo lítið og það hefur orðið brestur hjá þeim. (Gripið fram í.) Við skulum bara horfa á hvernig þetta var, það geta allir horft á það.
Þetta snýst ekki bara um smábátasjómenn, þetta snýst um byggðirnar. Það er það sem málið snýst um. Þess vegna er þetta Covid-mál, það snýst um byggðirnar sem vantar tekjur eftir að hafa misst tekjurnar af ferðamönnum. Það er það sem frumvarpið gerir. Byggðirnar munu fá auknar tekjur ef strandveiðar verða heimilar í september. Um það snýst málið.