150. löggjafarþing — 141. fundur, 4. sept. 2020.
frestun á fundum Alþingis.
1002. mál
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til að fresta fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 4. september 2020 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. október 2020.“
Tillagan skýrir sig sjálf.