þingfrestun.
Þá er þingstörfum framhaldsfunda Alþingis á síðsumri lokið í samræmi við það samkomulag sem gert var fyrir sumarhlé. Ég tel að Alþingi hafi unnist vel á stuttum tíma við óhefðbundnar aðstæður. Af sóttvarnaástæðum þurfti að stækka þingfundasvæði til að tryggja fjarlægðarmörk og koma fyrir atkvæðagreiðslukerfi við sæti þingmanna og ráðherra í hliðarsölum. Sérstakar þakkir færi ég öllum sem að þeim undirbúningi komu.
Vinnuaðstæður þingmanna og starfsmanna þingfundaskrifstofu Alþingis hafa því verið óvenjulegar og krefjandi á þessum framhaldsfundum Alþingis. Raunar hefur löggjafarstarfið verið í senn óvenjulegt, umfangsmikið og krefjandi, allt frá útmánuðum þegar kórónuveiran stakk sér niður á Íslandi. Ég tel að Alþingi hafi staðist þá raun og er þakkarvert að löggjafinn hafi getað sinnt hlutverki sínu óslitið þrátt fyrir faraldurinn, yfirleitt í ágætri eindrægni, á þessum dæmalausu tímum þegar jafn mikið liggur við og raun ber vitni.
Áður en ég lýk máli mínu vil ég geta þess að í gær voru opnuð tilboð í nýbyggingu Alþingis og ánægjulegt að tvö af fjórum tilboðum voru undir kostnaðaráætlun. Við horfum með eftirvæntingu til þess að öll starfsemi Alþingis verði í eigin húsakynnum og verði þá flest samtengd hér á Alþingisreitnum. Þetta mun gjörbreyta vinnuaðstöðu alþingismanna og starfsfólks til hins betra.
Að lokum vil ég þakka þingmönnum fyrir gott samstarf sem og starfsfólki Alþingis sérstaklega. Undir þessar þakkir mínar tekur forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, og biður fyrir kveðju til fundarins en hann er haldinn norður á sínar heimaslóðir í göngur.
Ég vænti þess að við hittumst öll heil þegar Alþingi kemur saman í októberbyrjun við þingsetningu 151. löggjafarþings.