150. löggjafarþing — 141. fundur,  4. sept. 2020.

þingfrestun.

[20:48]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, frá 4. september 2020 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 1. október 2020.

 

Gjört á Bessastöðum, 4. september 2020.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

________________

Katrín Jakobsdóttir.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 150. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil þakka hæstv. forseta og hv. þingmönnum fyrir gott skipulag þingstarfa á óvenjulegum tímum sem og hv. alþingismönnum öllum fyrir góða og málefnalega umræðu um þau mikilvægu þingmál sem hafa verið hér til umfjöllunar undanfarna daga. Við munum sjást fyrr en síðar.