151. löggjafarþing — þingsetningarfundur

forseti Íslands setur þingið.

[14:03]
Horfa

Forseti Íslands (Guðni Th. Jóhannesson):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar fimmtudaginn 1. október 2020.

Um leið og ég birti þetta er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 24. september 2020.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman fimmtudaginn 1. október 2020.“

Samkvæmt bréfi því sem ég hef nú lesið lýsi ég því yfir að Alþingi Íslendinga er sett.

Hv. alþingismenn. Ég óska ykkur velfarnaðar í vandasömum störfum. Ég vona að þingstörfin verði farsæl, landi og lýð til heilla. Rúmt ár er nú liðið frá því að þing var síðast sett. Þá óraði engan fyrir þeim hremmingum sem á okkur hafa dunið. Þá hafði veiran skæða ekki látið á sér kræla. Þá voru önnur mál efst í okkar huga.

Nú er allt breytt. Nú mótar farsóttin líf okkar að miklu leyti. Hér og úti í heimi hefur hún orðið fólki að aldurtila. Margir hafa veikst illa og áfram varir glíma okkar við þennan vágest.

Brýnar varnir gegn veirunni hafa valdið búsifjum. Gremju gætir og því miður berast okkur fregnir um ýmsar raunir, aukið ofbeldi á heimilum, kvíða og vanlíðan. Fólk hefur misst vinnu, fyrirtæki og einyrkjar eru í ærnum vanda, ekki síst á vettvangi ferðaþjónustu og verslunar, menningar og afþreyingar. Án aðgerða hefðum við þó flotið að feigðarósi. Við völdum að vernda líf og heilsu almennings eftir bestu getu.

Nú varðar miklu að fólk sýni áfram þrautseigju, æðruleysi og þor. Mikið megum við þá læra af eldri kynslóðum þessa lands, þeim sem hafa reynt sitthvað á langri ævi og láta ekki hvað sem er koma sér úr jafnvægi.

Síðustu mánuði höfum við Íslendingar átt ótalmörgum gott að gjalda. Ég veit að ég mæli fyrir hönd heillar þjóðar þegar ég þakka starfsfólki á sviði heilbrigðis, aðhlynningar og velferðar þeirra drjúgu verk. Þökkum einnig kennurum og stjórnendum, skólaliðum, ræstitæknum og öllum öðrum sem sáu til þess að skólastarfi hefur verið haldið uppi, frá leikskólum að háskólastigi. Þá á starfsfólk í verslun og þjónustu þakkir skildar, í nánd við aðra daginn út og inn. Enn fleiri mætti að sjálfsögðu nefna sem létu og láta til sín taka í þjóðarþágu.

Við munum hafa betur í baráttu okkar við skaðvaldinn. Um víða veröld vinna vísindamenn að gerð bóluefnis og leita líka annarra lyfja eða lækninga. Hér á Íslandi tekur starfslið Íslenskrar erfðagreiningar, Landspítala og háskólanna þátt í þeirri vinnu. Þekking vísar veginn og samvinna ekki síður, samvinna á alþjóðavettvangi og samvinna í okkar ágæta samfélagi.

Nú má reyndar vera að alþingismenn, glögga og ógleymna, rámi í ræðu mína við þingsetningu í fyrra. Þá komst ég svo að orði að ágreiningur einkenndi öflugt þing og öflugt samfélag, að bann við honum væri haldreipi hinna þröngsýnu, þvingunartól harðstjóranna.

Þau orð hljóta enn að teljast í góðu gildi og vissulega höfum við tekist á um ýmis álitamál þessa mæðusömu veirudaga. Því skulum við halda áfram, beita rökum og forðast fals. En saga síðustu mánaða er þó í ríkum mæli saga samkenndar, samúðar og samstöðu. Einhuginn fundum við svo vel í vor. Hans þurfum við áfram að njóta, nú þegar vetur nálgast.

Já, samstaða getur verið lofsverð, hún getur reynst kraftmikið hreyfiafl. En hitt getur líka gerst að viljinn til samstöðu hamli breytingum, leiði til kyrrstöðu. Illt væri að una við það til eilífðarnóns í mikilvægum málum að engu skuli hnikað vegna þess að full eining sé ekki fyrir hendi. Þannig synjunarvald samræmist vart lýðræðislegum stjórnarháttum.

Sannfæring getur verið eins lofsamleg og samstaða, en er samt ekki varhugavert að standa gegn breytingum ef þær fullnægja ekki óskum fólks og þörfum í einu og öllu? Þannig synjunarvald virðist ekki heldur til framfara fallið, sú leið til stöðnunar að hafna málamiðlunum og áfangasigrum, að velja frekar það versta en það næstbesta.

Á Alþingi er þungamiðja hins pólitíska valds á Íslandi. Í stjórnskipun okkar er málum nú svo háttað, eins og alkunna er, að verði breytingar á stjórnarskrá samþykktar hér þarf nýtt þing að staðfesta þá niðurstöðu að loknum almennum kosningum. Langt mál mætti flytja, hv. alþingismenn, um uppruna og þróun lýðveldisstjórnarskrárinnar. Segja má að sagan hefjist með því að þeir, sem sömdu hana og ræddu hér á Alþingi og víðar, sáu nær allir fyrir sér að hún yrði tekin til gagngerðrar endurskoðunar. Í tímans rás hefur verið ráðist í ýmsar umbætur, yfirleitt í góðum friði en ekki alltaf. Og vart verður því haldið fram með gildum rökum að þegar stjórnarskránni var síðast breytt á umtalsverðan máta, undir lok síðustu aldar, hafi verkið verið fullkomnað. Enn er verk að vinna — ætíð er verk að vinna. Stjórnarskrá verður aldrei meitluð í stein.

Í vetur munu einhverjir þingmenn vísast mæla fyrir því að landinu verði sett ný stjórnarskrá á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs sem voru kynntar þinginu fyrir tæpum áratug og nutu síðar stuðnings í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá liggur fyrir að frumvörp verða flutt um ákvæði í stjórnarskrá sem lúta að auðlindum, umhverfisvernd og íslenskri tungu, auk breytinga á greinum um völd og verksvið þjóðhöfðingjans. Er þeim ætlað að draga upp skýrari mynd af því stjórnarfari sem ríkir í raun en breyta því þó ekki í megindráttum. Gott var að finna í forsetakjöri í sumar að Íslendingar una vel við stöðu þessa embættis í stjórnskipun okkar.

Fleiri þættir falla undir heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar, meðal annars möguleg nýskipan á því hvernig henni er breytt og þjóðaratkvæði um lög að ósk hluta kjósenda. Mikil er hún því ætíð, ábyrgð Alþingis á þessum vettvangi. En nú um stundir virðist brýnast að þingmenn sýni í verki að þeir geti tekið þær tillögur að breytingum á stjórnarskrá, sem fram koma, til efnislegrar afgreiðslu. Vangeta gæti jafnvel talist þinginu til vansa.

Ég ítreka góðar óskir mínar til ykkar, ágætu alþingismenn. Vissulega eru blikur á lofti í þjóðlífinu en við höfum séð það svartara og njótum þess að hér eru meginstoðir samfélagsins traustar. Við eigum auðlindir til sjávar, sveita og heiða, að ekki sé minnst á auðæfi hugar og handar. Við skulum því bera okkur vel þótt úti séu stormur og él.

Ég bið þingheim allan að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.

[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

 

[Strengjadúett flutti lagið Eg vil lofa eina þá eftir Báru Grímsdóttur.]