stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Kæru landsmenn. Veturinn fram undan verður strembinn fyrir mörg okkar. Heimsfaraldurinn mun halda áfram. Ástvinir geta veikst og lífið getur farið úr skorðum. Við hér á Alþingi þurfum að taka ákvarðanir sem snerta heilsu landsmanna allra en líka atvinnuöryggi fólks, aðstæður til menntunar og félagsleg samskipti. Staðan fram undan krefst þess að liðið sem ætlar að spila fyrir hönd Íslands sé sammála um hvert skuli stefna. Vörnin er þétt, miðjan útsjónarsöm og sóknarleiðin sækir fram af dirfsku.
Í vörninni þarf að verja störf en einnig að verja heilbrigðis- og velferðarkerfið. Nú þarf heilbrigðiskerfið ekki á áframhaldandi aðhaldskröfu að halda heldur verulegri innspýtingu langt umfram það sem þegar hefur verið boðað. Þannig fetum við í spor nágrannalanda okkar sem hafa sett mun hærri viðbótarfjárhæðir en við í að styrkja heilbrigðiskerfin í þessu mikla álagi.
Útsjónarsemin þarf að snúast um að nýta afl ríkisins því þegar gefur á bátinn í atvinnulífinu verður ríkið að taka við, ekki með semingi heldur af krafti. Þær ráðstafanir verða að taka mið af skuldbindingum okkar í loftslagsmálum og byggja undir græna framtíð með skýrum aðgerðum. Þetta gera önnur ríki. Við eigum að gera það sama. Sóknin úr faraldrinum verður að vera græn. Hér þarf að vera til græn alvöruatvinnustefna. Alþjóðlegar fyrirmyndir að sköpun grænna starfa eru til og þeim skulum við fylgja.
Nýsköpunarstefnuna þarf að uppfæra og gera hana miklu markvissari í samræmi við aukna fjármuni í nýsköpun og við þurfum sérstakt atvinnuátak fyrir ungt fólk. Hin hlið sóknarinnar snýst um að taka miklu djarfari og róttækari ákvarðanir nú þegar kemur að loftslagsmálunum. Gera þarf miklu betur en nú er gert í orkuskiptum, eins og forstjóri Landsvirkjunar skrifar í nýjasta pistli sínum. Hann kallar eftir skýrari aðgerðum til að klára orkuskiptin ef við ætlum að standa við markmið Parísarsamkomulagsins. Mikið liggur við. Það ríkir nefnilega neyðarástand vegna hamfarahlýnunar. Þegar kemur að náttúruvernd er stofnun miðhálendisþjóðgarðs eitt stærsta og mikilvægasta þingmálið á þessu þingi. Það verður áhugavert að sjá hvort þeir þingmenn sem hafa staðið í vegi fyrir málinu hingað til og tekist að koma í veg fyrir það muni gera það áfram.
Góðir landsmenn. Það er til mælikvarði á hversu manneskjuleg samfélög eru. Hann er sá hvernig við komum fram við þau sem minnst mega sín, hvort við útrýmum fátækt, hvort við styðjum við þau sem þurfa stuðning til að eiga sér mannsæmandi líf með reisn, hvernig við tökum á móti fólki sem til okkar leitar eftir alþjóðlegri vernd undan stríðsátökum, ofsóknum, sárafátækt eða afleiðingum loftslagsbreytinga. Íslenskt samfélag á að vera manneskjulegt samfélag sem lætur ekki 200 manns bíða í röð á fimmtudagseftirmiðdegi eftir matargjöfum. Íslenskt samfélag á ekki að reka börn eða barnafjölskyldur af erlendum uppruna úr landi og meiri hluti almennings vill ekki þessa hörku eins og nýleg skoðanakönnun sýnir um jákvæðari afstöðu fólks en áður til samborgara okkar af erlendum uppruna. Það sýnir líka samtakamáttur þúsunda manna sem mótmæltu því að reka börn úr landi. Það eru því stór vonbrigði að sjá lagafrumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga á þingmálaskránni, frumvarp sem er harðlega gagnrýnt af mannréttindasamtökum. Við þurfum meiri mannúð í þennan málaflokk, nokkuð sem við höfum beðið eftir í þessi þrjú ár síðan ríkisstjórnin gaf fyrirheit um það. Á meðan hefur þurft að berjast af krafti fyrir því hvað eftir annað að börn sem hafa fest rætur og myndað tengsl verði ekki rekin úr landi og úr örygginu. Íslenskt samfélag á að taka utan um öll þau sem minna mega sín með opnum faðmi, láta sterk mannúðleg kerfi grípa fólk við erfiðar aðstæður og tryggja jöfn tækifæri fyrir okkur öll, sama hvaðan við erum og hver við erum. Kórónuveiran hefur afhjúpað að við erum alls ekki í sama báti, eins og fjármálaráðherra lýsti yfir fyrir nokkru. Við erum hins vegar öll í sama storminum, eins og Greta Thunberg minnti okkur á, hvort sem um er að ræða kórónuveirufaraldurinn, áhrif loftslagsbreytinga eða efnahagskreppu. Ef það er eitthvað sem við ættum að læra af heimsfaraldrinum er það aukin samkennd, samtakamáttur, umburðarlyndi og náungakærleikur.
En við þurfum líka að ákveða hvernig við viljum byggja samfélag okkar upp á ný. Til þess erum við hér. Það samfélag verður að vera byggt upp með grænum lausnum til framtíðar og mannúðlegum leiðum fyrir okkur öll. Ísland hefur öll tækifæri til þess. — Ég óska ykkur velfarnaðar í krefjandi verkefnum.