151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

sóttvarnaaðgerðir og efnahagsaðgerðir.

[10:31]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það er gott að vera komin aftur inn á þingið á þessu síðasta þingi fyrir næstu kosningar. Lýðræðið fer nefnilega ekki í sóttkví þó að ég fái það stundum á tilfinninguna að ríkisstjórnin óski þess að við í þinginu förum okkur aðeins hægar. En það er á okkar herðum og okkar ábyrgð að veita málefnalegt aðhald og þess vegna höfum við í Viðreisn meira og minna stutt flestar aðgerðir ríkisstjórnarinnar en líka komið með gagnrýni á ríkisstjórnina og stundum fengið bágt fyrir.

Það er athyglisvert að fylgjast með ríkisstjórninni og ég sé að ríkisstjórnarfundirnir eru að lengjast þegar verið er að fjalla um sóttvarnaráðstafanir stjórnvalda. Þess vegna langar mig til að vita: Er algjörlega full samstaða innan ríkisstjórnarinnar um sóttvarnaaðgerðir? Mér finnst líka pínulítil upplýsingaóreiða. Í gær var sagt að banna ætti áhorfendur á íþróttakappleikjum en nú mega áhorfendur blessunarlega fara á íþróttakappleiki ef þeir eru með grímur. Ég vil beina því til ríkisstjórnarinnar að skerpa aðeins á upplýsingum og upplýsingaflæði til fólks og almennings.

Í fyrsta lagi langar mig til að spyrja: Er full samstaða innan ríkisstjórnarinnar um aðgerðirnar? Síðan vil ég brýna hæstv. forsætisráðherra til að setja fram efnahagsaðgerðir sem eru í samræmi og samhengi við mjög sterkar og skýrar sóttvarnaaðgerðir. Ríkisstjórnin hefur lofað ýmsu fögru en mér finnst það orðið svolítið endurnýtt og bætt. Við höfum heyrt miklar yfirlýsingar um að fara eigi í fullt af framkvæmdum. Síðan kemur í ljós að framkvæmdir minnka milli ára, m.a. í samgöngumálum á milli áranna 2019 og 2020. Hljóð og mynd fer ekki saman hjá ríkisstjórninni. Hæstv. samgönguráðherra sagði í gær: Orð eru til alls fyrst þegar verið var að tala um atvinnu og atvinnuuppbyggingu. Ég spyr sérstaklega: Erum við ekki komin lengra en svo að segja að orð séu til alls fyrst? Við þurfum að fá skýrari aðgerðir og skýrari skilaboð.

Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að koma með aðgerðapakka sem veitir fólki meira öryggi en bara til næstu vikna? Getum við fengið að sjá aðgerðir sem veita fólki svigrúm til næstu 10–12 mánaða? Þá er ég að tala um að framlengja strax tekjutengingu, m.a. atvinnuleysisbóta, að tryggingagjald verði lækkað tímabundið næstu 12 mánuði, m.a. fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þetta eru tvær spurningar til hæstv. forsætisráðherra.