151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

sóttvarnaaðgerðir og efnahagsaðgerðir.

[10:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil taka eindregið undir með forsætisráðherra, það er brýnt að efla og undirbyggja samstöðu í samfélaginu. Ég hef margsagt það hér, samstaðan er svo dýrmætt verkfæri fyrir okkur til þess að komast í gegnum erfiðleika. Því samhentari sem við erum, því betur komumst við í gegnum erfiðleika og þann stóra skafl sem er ekki lengur nýlunda. Þess vegna vil ég brýna ríkisstjórnina í því að vera tilbúin með aðgerðir. Þetta er þriðja bylgjan núna. Það er búið að segja okkur að þær verði hugsanlega nokkrar. Þess vegna vil ég hvetja ríkisstjórnina til að setja fram efnahagsaðgerðir sem eru í samræmi við þessa miklu kreppu og þetta mikla atvinnuleysi, hvort sem það er á Suðurnesjum eða annars staðar í samfélaginu, til að fólk fái skýr svör. Það er það sem er verið að kalla eftir.

Ég tel mjög mikilvægt að þingið verði virkjað í ríkari mæli, ég undirstrika það. Mér hugnast það ekki sérstaklega þegar ég sé að ríkisstjórnin er að fá sérfræðiálit um það hversu langt hún megi ganga í stjórnvaldsákvörðunum. Gott og vel. Ef það er til þess að vita hver mörkin eru þá er það fínt. En ég vil beina því til hæstv. ráðherra og ríkisstjórnar að ég tel farsælla að virkja lýðræðislegan vettvang og hann er hér. Hann er Alþingi Íslendinga. Og vitið til, hér er meiri samstaða en fólk grunar og meiri stuðningur við margar af þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin er að setja fram. En við segjum líka: Komið með það sem hefur ekki dugað og veitið svör. Eigum við að nefna brúarlán? Þau hafa ekki virkað. Hvaða önnur úrræði ætlið þið t.d. að bjóða ferðaþjónustunni upp á? (Forseti hringir.) Já, við erum í þessu saman en það þarf tvo til að dansa tangó.