151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

sóttvarnaaðgerðir og efnahagsaðgerðir.

[10:39]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er mikilvægt sem hv. þingmaður segir, samstaðan er oft meiri á þingi en fólk grunar. Það er þannig og mér finnst sjálfri að umræðan sem við höfum átt, alveg frá því í vor um aðgerðir og ráðstafanir til að bregðast við faraldrinum, hafi verið af hinu góða. Mér finnst umræðan í þinginu hafa verið heilbrigð og ég held að við séum um margt öfundsverð að því leyti.

Hv. þingmaður spurði um aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Í fyrsta lagi erum við auðvitað búin að boða umfangsmiklar aðgerðir, m.a. til að mæta rekstraraðilum í vanda. Þar er ferðaþjónustan auðvitað fyrirferðarmest en ég vil líka nefna til að mynda þau sem starfa innan skapandi greina. Þeim verður mætt með ráðstöfunum af hálfu ríkisstjórnarinnar sem við munum leggja til hér við Alþingi og munu birtast í fjáraukalagafrumvarpi.

Ég nefni sömuleiðis tímabundna lækkun tryggingagjalds, sem var tilkynnt á dögunum, til að styðja atvinnulífið í gegnum þennan skafl. Við munum ræða slíkar ráðstafanir í fjármálaáætlun, bæði til skemmri og lengri tíma. Hv. þingmaður nefndi opinbera fjárfestingu sem dæmi. Hún hefur aukist gríðarlega í tíð þessarar ríkisstjórnar en þó hafa einhverjar framkvæmdir tafist. Ríkisstjórninni er ekki um að kenna í því.

Hv. þingmaður vitnaði til greinargerðar, væntanlega Páls Hreinssonar, um lagaheimildir sóttvarnalaga þegar hún nefndi lagaheimildir til stjórnvaldsákvarðana. Auðvitað er mjög mikilvægt á hverjum tíma að stjórnvöld iðki ákveðna sjálfsgagnrýni og leiti til færustu sérfræðinga til að fara yfir valdheimildir laganna. Þar komu fram nokkrar mjög góðar ábendingar sem munu koma á borð Alþingis (Forseti hringir.) við endurskoðun sóttvarnalaga en líka sú meginniðurstaða að stjórnvöld hafa mjög ríkar (Forseti hringir.) valdheimildir til að bregðast við ástandi eins og nú er.