kynjahalli í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Í atvinnukreppu er enga vinnu að fá fyrir atvinnuleitendur. Í heimsfaraldri og á óvissutímum eru um 20.000 manns án atvinnu á Íslandi. Allir vita um stöðu ferðaþjónustunnar, sem var orðin stærsta atvinnugreinin á Íslandi, en faraldurinn hefur einnig mikil áhrif vegna álags á félags- og heilbrigðisþjónustu. Framlínufólkið okkar er undir miklu álagi og þar eru kvennastéttir í meiri hluta. Úti um allan heim er veirufaraldurinn ekki aðeins að auka á ójöfnuð heldur einnig á kynjahalla með viðbrögðum margra ríkja við kreppunni, og það á einmitt við hér á landi. Svokallað fjárfestingarátak ríkisstjórnarinnar eykur á kynjamisrétti því að það eru í kringum 85% starfanna sem unnin verða af körlum. Fjárfesting í nýsköpun hallar einnig á konur og augljóslega átakið Allir vinna þar sem nær eingöngu er einblínt á hefðbundin karlastörf.
Niðurstaða greiningarinnar í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár á áhrifum aðgerða á jafnrétti kynjanna er að mikill meiri hluti starfa sem skapast vegna aukinna útgjalda verði unninn af körlum. Munar þar mest um fjárfestingarátakið og að meiri hluti annarra ráðstafana er talinn stuðla að óbreyttu ástandi þar sem fyrir er kynjahalli, körlum í vil. Atvinnuleysi bitnar ekki síður á konum en körlum. Atvinnuleysi kvenna er meira en karla í næstum öllum landshlutum og á Suðurnesjum, þar sem heildaratvinnuleysi er mest, var atvinnuleysi kvenna í ágúst 21% en karla 16%. Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvers vegna hæstv. ríkisstjórn ákvað að bregðast frekar við atvinnuleysi karla en kvenna og ýta undir misrétti kynjanna með svo afgerandi hætti í atvinnukreppu.