151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

kynjahalli í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

[10:43]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á mjög mikilvægu efni sem er ólíkar afleiðingar heimsfaraldurs fyrir karla og konur. Við sjáum það um heim allan að heimsfaraldurinn hefur valdið auknu heimilisofbeldi. Jafnvel er talað um sérstakan faraldur í þeim efnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þar hafa íslensk stjórnvöld brugðist við með því að styðja við Kvennaathvarfið sérstaklega og ráðast í aukna vitundarvakningu um ofbeldi.

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að skera ekki niður í hinu opinbera kerfi. Það er mjög mikilvæg og pólitísk ákvörðun og þar er meiri hluti starfsfólks konur. Það er hins vegar alveg rétt að þegar við skoðum sérstakt fjárfestingarátak eingöngu, eins og hv. þingmaður kýs að gera hér þegar hún talar um áhrifin á kynin, þá er alveg ljóst að þegar horft er til framkvæmda í samgöngumálum, svo að dæmi sé tekið, eða byggingargeirann, sem eru hinar hefðbundnu fjárfestingar, þá gagnast þær fyrst og fremst í því að skapa störf sem hefðbundið eru unnin af körlum. Hver er ástæðan fyrir því? Jú, ástæðan er sú að íslenskur vinnumarkaður er sá kynjaskiptasti sem finna má. Það er vandamál og það er eitt af því sem við höfum tekið til sérstakrar skoðunar. Nú erum við að fara af stað í sérstaka skoðun á launamun og kynjaskiptum vinnumarkaði með aðilum vinnumarkaðarins vegna þess að þarna þarf að horfa til lengri tíma. Af hverju er íslenskur vinnumarkaður jafn kynjaskiptur og raun ber vitni? Það er langtímaverkefni að breyta því. Ég vil segja það við hv. þingmann að þegar við horfum á þessa fjárfestingaráætlun munu margar þeirra ákvarðana sem þar eru undir ekki síður nýtast konum. Ég nefni rannsóknir, nýsköpun, grænu verkefnin og skapandi greinar. Allt eru það fjárfestingar sem munu svo sannarlega gagnast konum ekki síður en körlum.

Ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum að vera mjög meðvituð um það viðfangsefni sem kynjaskiptur vinnumarkaður er og ég fagna því ef Alþingi tekur umræðu um þau mál. En það er líka stór ákvörðun sem felst í því að verja almannaþjónustuna, heilbrigðiskerfið, skólana og allar þær stofnanir sem konur hafa haldið uppi og ef við getum dregið eitthvað úr þessum faraldri þá er það ekki síst sú mikla ábyrgð sem hefur verið lögð á axlir kvennastétta í öllu opinbera kerfinu okkar sem þær hafa svo sannarlega risið undir. (Forseti hringir.) Þar með er ég ekki að gera lítið úr þeim körlum sem vinna í þeim stéttum né heldur karlastéttum eins og lögreglunni (Forseti hringir.) sem líka hafa staðið í framlínunni.

(Forseti (SJS): Enn er klukkan aðeins að stríða okkur en nú ber svo við að hún bætir af miklu örlæti 20–30 sekúndum við ræðutíma hv. þingmanna og fær forseti ekki við það ráðið en forseti vekur athygli á því að ekki þarf að fullnýta þann tíma heldur er æskilegt að menn haldi sig við tvær mínútur í fyrri umferð og eina mínútu í seinni.)