einstaklingar sem vísa á úr landi.
Virðulegur forseti. Ég hafði ýmsar spurningar um verklagið á undanförnum vikum og þess vegna fundaði ég sérstaklega með stoðdeild ríkislögreglustjóra til að fara yfir allt þetta verklag. Hvar er hægt að gera betur? Hvar er það sem löggjafinn rammar inn verkefnið og gerir þeim kannski erfiðara fyrir en ella? Hvar er hægt að gera betur til að hafa aukið eftirlit og til að þessar framkvæmdir reynist auðveldari?
Við þurfum að skoða úrræði og það hafa verið umræður í Evrópulöndum um ákveðin úrræði, að hafa fólk á ákveðnu svæði, sem við höfum t.d. ekki framfylgt með breytingum á okkar lögum. Það er víða í löndunum í kringum okkur þar sem þessu er háttað þannig að aðilar eru á ákveðnu svæði eftir að þeir fá t.d. neitun frá báðum stjórnsýslustigum til að það sé hægt að framkvæma þetta með auðveldari hætti. Það gerist þá ekki að aðilar séu týndir í samfélaginu og ekki sé hægt að framfylgja ákvörðunum. Það eru lagabreytingar sem þyrfti að ráðast í en annars erum við að skoða verklagið í heild sinni í þessu eins og öðru.
Hv. þingmaður kemur inn á skipulagða brotastarfsemi og mansal og við erum auðvitað líka að skoða hvað við getum gert betur og sitjum nú yfir því með öllum lögregluembættunum.