151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[16:33]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég verð að segja varðandi landbúnaðarmálin að það er alveg klárt mál að gerð voru mistök við samningsgerðina og við verðum bara að læra af því. Við eigum þess vegna að taka þennan samning upp vegna þess að hann er okkur óhagstæður. Og nú sjáum við fram á miklar breytingar í samningsumhverfinu. Bretar eru að fara úr þessu samstarfi og úr þessum samningi og fengu þar aðlögunartíma sem rennur út um áramótin. Það mun hafa veruleg áhrif á samninginn hvað okkur varðar. Síðan er það að koma fram núna að eftirlit með samningnum er nánast ekkert. Verið er að flytja hingað inn miklu meira af landbúnaðarvörum frá Evrópusambandinu en heimild er til. Það kemur náttúrlega niður á kjörum bænda og er mjög alvarlegt mál. Við verðum að taka á þessu og sameinast um það vegna þess að aldrei var samið um að menn færu fram hjá þessum samningi, eins og greinilegt er að verið er að gera. En ég veit að hv. þingmanni er umhugað um landbúnaðinn og hefur lagt fram margt gott í þeim efnum.

Ég veit að við erum sammála um að nauðsynlegt er að þessi samningur verði íslenskum bændum hagstæður. Hann er ójafn eins og hann er og við þurfum að leiðrétta það og ég fagna því ef utanríkisráðherra er kominn í þá vinnu sem hv. þingmaður upplýsti hér. Það væri gaman að vita hvernig sú vinna gengur og hvort hæstv. ráðherra sé bjartsýnn á að við náum þá samningi sem er hagstæður fyrir íslenskan landbúnað. Við þurfum að styrkja íslenskan landbúnað og sérstaklega í því árferði sem við erum í nú. Þess vegna eigum við alls ekki að láta svona hluti viðgangast eins og eru greinilega í gangi, að samningur sem var gerður og er okkur óhagstæður verði gerður enn óhagstæðari með því að misnota hann með þeim hætti sem greinilegt er vegna þess að hann er eftirlitslaus og hingað streyma inn landbúnaðarvörur sem eiga með réttu ekki að koma í gegnum þennan samning.