fjárlög 2021.
Herra forseti. Við fjöllum hér um fjárlög komandi árs. Ég ætla að reyna að halda mig við þau frekar en að blanda umræðunni mikið við fjármálaáætlun sem við ræðum aftur á morgun en sjálfsagt er nú óhjákvæmilegt að eitthvað flæði þar á milli. Það blandast engum hugur um að við eigum núna við að etja aðstæður sem eru að mörgu leyti fordæmalausar og þess vegna þarf að grípa til aðgerða í ríkisfjármálum sem hæfa því tilefni. Ríkisstjórnin hefur gjarnan sagt, eða a.m.k. sumir fulltrúar hennar og ráðherrar, að það sé ástæða við þessar aðstæður að gera heldur meira en minna og undir það tek ég og undir það tökum við í Viðreisn. Við höfum reyndar orðalag yfir þessi mál og segjum: Stór skref strax. Þarna er því strax orðin býsna góður samhljómur sem ég held að við ættum að reyna að nýta okkur í framhaldinu.
Það eru mörg vandamál sem við glímum við og það sem hæst ber og fyrst ber að nefna er ein afleiðing af þessari kreppu, sem er atvinnuleysið. Atvinnuleysi er nú í hæstu hæðum og á væntanlega eftir að verða enn meira. Atvinnuleysi er böl sem við viljum ekki hafa í samfélagi okkar. Það kemur mjög misjafnlega niður á landsmönnum. Það er bæði svæðisbundið og það er greinabundið. Það þarf að taka á þeim málum í samræmi við það. Aðgerðir þurfa að beinast að því að ráðast gegn atvinnuleysinu þar sem það er mest. Það er sömuleiðis kunnara en frá þurfi að segja að það eru mjög mörg fyrirtæki í landinu sem eiga við mikinn rekstrarvanda að stríða og þar er það sama upp á teningnum, þeim vanda er mjög misskipt. Þarf ekki að hafa mörg orð um það að í ferðaþjónustunni og tengdum greinum hafa menn orðið harðast úti og liggur víða við — eða liggur ekkert við, sú starfsemi er algerlega lömuð og má segja að reksturinn liggi niðri. Á sama tíma eru svo aðrar greinar sem spjara sig ágætlega. Það þarf líka að hafa þetta í huga þegar við ræðum um skynsamlegar aðgerðir.
Það blasir við að þegar stór hluti fólks er án tekna, og er talið að það geti orðið 25.000 manns og upp undir 30.000, segja sumir, um áramótin, verður samdráttur í innlendri eftirspurn þegar tekjur fólks rýrna. Þess vegna er mjög mikilvægt að reyna að halda uppi eftirspurninni með því að aðstoða þetta fólk. Það er líka ýmis vandi sem fylgir svona miklum samdrætti hjá fyrirtækjum og heimilum og það er hinn félagslegi vandi, fyrir utan að sjálfsögðu hinn heilsufarslega. En það eru ekki bara áhrif Covid á þá sem smitast af þeim sjúkdómi heldur er hætt við því að langvarandi atvinnuleysi og óvissa hafi áhrif á félagslega stöðu og almennt heilsufar, ekki síst andlega heilsu.
Síðan glímum við við mikið tekjufall hjá ríkissjóði. Það blasir við og um það er ekki deilt að það er mikil skuldasöfnun. Við erum þó, held ég, flest sammála um að rétt sé að beita ríkissjóði við þessar aðstæður en auðvitað eru því á endanum takmörk sett hvað ríkissjóður getur gert og hvað er skynsamlegt að hann geri mikið. Við verðum líka að horfast í augu við að segja má að ríkisfjármálin hafi verið orðin ósjálfbær fyrir Covid. Þau eru svo sannarlega ekki sjálfbær eins og nú er en auðvitað stefnum við að því að þau verði sjálfbær.
Herra forseti. Ég hef aðeins minnst á í mjög stórum dráttum það sem við er að etja og kemur sjálfsagt engum á óvart. Þá vil ég nefna og hugleiða með þingheimi nokkur atriði sem geta haft mikil áhrif á hvernig málin þróast og nokkrar staðreyndir í efnahagslífinu. Þetta er ekki endilega í mikilvægisröð en ég ætla að byrja á forsendum fjárlagafrumvarpsins sem kunna að vera nokkuð bjartsýnar, ekki síst í ljósi síðustu tíðinda um að miklu hægar gangi en við vonuðum öll til að takast á við Covid og kann að vera að það sé of mikil bjartsýni. Þá blasir líka við að verðbólgan er aðeins farin að láta kræla á sér, aðeins segi ég en hún er náttúrlega talsvert mikið farin að láta á sér kræla. Við búum líka við það að kaupmáttur hér hefur verið að eflast mjög á undanförnum árum og er það í sjálfu sér fagnaðarefni en að sama skapi búum við það að framleiðniaukning í samfélaginu hefur ekki verið nægjanlega mikil og eiginlega langt frá því. Sagan segir okkur að á endanum skilar það sér út í verðbólgu ef launahækkanir eða kaupmáttur fer langt fram úr framleiðniaukningunni. Þarna er ég að horfa til lengri tíma. Þessu tengt er að gengi krónunnar hefur lækkað umtalsvert á þessu ári. Það vitum við líka að skilar sér inn í verðlagið og er þegar tekið að gera það. Þetta eru undirliggjandi þættir sem ég held að sé mjög mikilvægt að við höfum í huga.
Eitt af því sem við erum öll að tala um er að reyna að veita góða viðspyrnu við þessu og til þess eru margar leiðir færar. Okkur og ríkisstjórninni verður tíðrætt um að ráðast í arðbær verkefni og framkvæmdir og ég held að við séum flestöll sammála um að það sé skynsamlegt. Ég kýs að tala í einu lagi um verkefni og framkvæmdir því að þetta getur verið af ýmsum toga. Hinar verklegu framkvæmdir eru mikilvægar og þar held ég að sé mjög brýnt, og reyndar á það við hin verkefnin líka og svo sem allt þetta viðbragð, að gera meira en minna og taka stór skref strax.
En ég hef reyndar nokkrar áhyggjur af því að það gangi fullseint að hrinda þessum verkefnum af stað og koma framkvæmdum af stað. Ástæðan fyrir því að ég er að tala um þetta eru m.a. viðvörunarorð fjármálaráðs sem segir að það sé mjög óskynsamlegt ef staðan verður sú að akkúrat þegar viðsnúningurinn í hagkerfinu verður sem hraðastur og mestur, og við öll vonum að þetta ástand vari ekki mjög lengi, það sé frekar stutt og snart, sé mjög óheppilegt og óæskilegt og jafnvel hættulegt að þá fyrst séu að koma til framkvæmda stór verkefni á næstu árum á eftir, þegar við þurfum ekki á þenslu að halda eða því að setja spennu í hagkerfið þegar almennt atvinnulíf er að taka við sér. Þess vegna hlýtur það að vera forgangsverkefni fyrir okkur að finna sameiginlega bæði verklegar framkvæmdir og önnur arðbær verkefni sem kunna að vera fyrir hendi hjá ríki og sveitarfélögum og hafa þá þann kost, fyrir utan það að vera arðbær, að geta skapað störf, að hægt sé að ráðast í þau strax. Þetta er mjög mikilvægt og ég trúi ekki öðru en að ríkisstjórnin sé þegar búin að lista upp fjöldann allan af verkefnum sem er hægt að hrinda af stað strax, því að það er aðalmálið. Vandinn er núna, vandinn verður vonandi ekki með þessum hætti að ári eða tveimur liðnum. Þetta er gríðarlega mikilvægt.
Við erum líka flestöll sammála um að það sé mjög mikilvægt að horfa til framtíðar og þar held ég að við getum gert enn betur en við erum að gera núna og enn betur en fram kemur í fjárlagafrumvarpinu. Þá á ég fyrst og fremst við það að við beitum þeim tækjum sem við höfum til að beina fjármagni inn í nýsköpunargeirann núna og á næstu mánuðum. Þess vegna held ég að þrátt fyrir góða viðleitni til að auka fjármuni inn í þennan geira sé mikilvægt að skoðað verði mjög vandlega hvort ekki sé rétt að flytja sérstakt fjáraukalagafrumvarp strax um það að samkeppnissjóðirnir fái aukið fjármagn þegar á þessu ári. Ástæðan fyrir því að það er skynsamlegt er sú að það liggur fyrir að mikil þörf er fyrir þetta fé. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri í þessa sjóði. Það liggur fyrir að langt innan við helmingur af þeim umsóknum sem taldar eru mjög verðugar hefur fengið stuðning. Það væri mjög mikilvægt ef hægt væri að koma þessu fjármagni strax í vinnu, ekki vera að bíða með það fram eftir næsta ári. Þarna eru tækifæri, þarna er atvinnusköpun og þarna er framtíðin. Ef við drífum okkur í þetta strax koma bjartari horfur í efnahagslífinu fyrr fram og til lengri tíma og leiða til þeirrar nauðsynlegu umbyltingar í efnahagslífi okkar sem við verðum að undirbúa og gera það strax.
Þessu tengt langar mig til að nefna að samþykkt var á þessu ári að veita fjármagn í svokallaða Stuðnings-Kríu sem felst í því að ríkið lánar nýsköpunarfyrirtækjum sem eiga við fjárhagsvanda að etja, lánar þeim fé gegn því að aðrir fjárfestar komi með sambærilegt fé á móti. Um þetta var talsvert rætt hér þegar fjáraukalög voru samþykkt og þar gagnrýndi ég og við hjá Viðreisn að um allt of lítið fé væri að ræða, eða 700 milljónir, sem kæmi frá ríkinu inn í þetta verkefni. Nú er komið í ljós að það voru 26 fyrirtæki sem fengu samþykktar umsóknir og eru þær til úrvinnslu hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins sem hefur með þessi mál að gera. En þá kemur í ljós að ríkið getur ekki mætt þeim loforðum sem gefin voru, vissulega með fyrirvara um að það yrði að skera niður ef fjármagnið dygði ekki hlutfallslega til fyrirtækjanna en við erum ekki að tala um neinn smá niðurskurð. Þetta er upp undir helmings niðurskurður þannig að fyrirtæki sem hafði viðurkennda fjárþörf upp á 200 milljónir fékk fjárfesti til þess að lofa 100 milljónum gegn því að ríkið kæmi með aðrar 100, en nú segir ríkið: Því miður. Peningarnir eru nógir. Þið fáið bara 50 milljónir eða 55 milljónir eftir atvikum. Við skulum hafa í huga að þetta eru lán. Þetta eru ekki styrkir.
Það sem hefur líka verið að koma í ljós er að þeir skilmálar sem fylgja þessum lánum eru ákaflega stífir og íþyngjandi. Það er raunverulega mjög merkilegt að þegar við erum að hjálpa fyrirtækjum, nýsköpunarfyrirtækjum, sem við tölum öll um að séu framtíðin þá allt í einu verðum við eins og grimmasti fjárfestir þegar við lánum fé til þessara verkefna. Þá segjum við: Ríkið verður að vera jafn grimmt og örgustu kapítalistar. Ég veit ekki alveg hvort þetta sé rétt stefna ef þetta er viðbragð við neyð þessara fyrirtækja og ef þetta er framtíðin sem við erum að reyna að skapa. Ég held að skynsamlegast væri að ganga strax til verks í því að flytja fjáraukalagafrumvarp og koma þessu í horf. Það myndi Viðreisn styðja með ráðum og dáð og ekkert því til fyrirstöðu í sjálfu sér að gera það.
Það eru ýmsir aðrir þættir sem blasa við að við verðum að takast á við. Við getum nefnt að það er mikill vandi hjá sveitarfélögunum og þau finna mjög þungt fyrir afleiðingum af svona kreppum. Það verður mikið álag á félagsleg kerfi í sveitarfélögunum og það verður að bregðast við því. Sveitarfélögin eru þannig í sveit sett að þau eiga erfitt með að afla sér tekna, þau hafa ekki skattlagningarvald og hendur þeirra eru nokkuð bundnar í lántökum. Þarna er því stórt verkefni sem við verðum að takast á við sameiginlega. Það eru ærin verkefni sem þarf að takast á við.
Ég hef kosið í þessu innleggi mínu við 1. umr. að fara ekkert mjög stórum orðum um fjárlagafrumvarpið sjálft eða vera eitthvað sérstaklega harðorður í gagnrýni í þessari fyrstu umferð. Það er auðvitað margt gott í þessu frumvarpi og skárra væri það nú. Það er mjög margt þarna sem er eðlilegt og sjálfsagt að sé þar. Það sem ég vonast til að gerist í vinnu fjárlaganefndar er að það komi viðbrögð frá þeim sem fara með meiri hlutann í þeirri ágætu nefnd, stjórnarmeirihlutanum, að menn leggi sig fram um það að hlusta eftir þeim tillögum og hugmyndum sem verða lagðar þar fram af hálfu stjórnarandstöðunnar og Viðreisnar, sem ég er að tala fyrir hér. Þær tillögur verði ræddar af alvöru og tekið mark á þeim. Þrátt fyrir að ég viti og dragi ekki í efa að hæstv. fjármálaráðherra og þau sem standa að þessu frumvarpi hafi reynt að vanda sig eins og þau gátu þá eru mannanna verk þannig að það má lengi bæta og laga. En auðvitað hlýtur meginviðfangsefnið að vera að skapa kröftuga viðspyrnu strax. Það þarf að gera núna. Það þýðir ekki að gera það eftir nokkra mánuði eða jafnvel ár, eins og ég vék að áðan varðandi stærri framkvæmdir.
Talandi um stærri framkvæmdir þá átti ég orðastað hér við hæstv. fjármálaráðherra eftir framsöguræðu hans þar sem þessi mál bar aðeins á góma og nefndi þar m.a. brú yfir Ölfusá sem er á samgönguáætlun en er fyrirhugað að fara með í gegnum svokallaða PPP-fjárfestingarleið, þ.e. samvinnuverkefni einkaaðila og ríkisins. Ég hef af því áhyggjur að sú aðferðafræði, sem ég hef ekkert á móti, ég ítreka það, það er ágæt aðferðafræði, verði til þess að verkefnið muni tefjast. Eftir því sem ég best veit er mannvirkið fullhannað og tilbúið í sjálfu sér til að fara í útboð og hægt að hefja vinnu við það strax. Ég held að það væri skynsamlegt, þó að það sé kannski ekki algerlega fjárlaganefndar að mæla fyrir um þá forgangsröðun en engu að síður, að flytja svoleiðis verkefni fram fyrir í röðinni, verkefni sem er tilbúið og mun skipta miklu máli. Þetta er stór framkvæmd og líka mjög arðbær framkvæmd sem ég held að enginn deili um að sé mikilvæg. Ég held að þetta sé eitt af því sem við ættum að skoða mjög vandlega.
Það eru ýmis önnur atriði sem að einhverju leyti er tæpt á í fjárlagafrumvarpinu. Það er t.d. að hraða orkuskiptum. Þar held ég að væri hægt að gera mikið átak, enn meira átak en þegar hefur verið boðað, t.d. að byggja upp hleðslustöðvar um allt land og ýta undir að ökutæki verði vistvæn. Ég held að þetta skipti gríðarlegu máli.
Síðan leggjum við í Viðreisn áherslu á að hægt er að grípa til margvíslegra tímabundinna aðgerða sem geta örvað atvinnulífið. Eins og ég minntist á í upphafi þarf að beina sjónum sérstaklega að þeim greinum sem hart hafa orðið úti. Ég held að að sumu leyti hafi t.d. tekist ágætlega til með svokallaða ferðagjöf sem enn er í gildi og setti a.m.k. symbólískt kraft í það að við Íslendingar ferðuðumst innan lands og gistum á hótelum og borðuðum á veitingastöðum. Ég held að við gætum hugsanlega endurtekið þann leik með myndarlegri hætti og gefið t.d. þrefalda ferða- og menningargjöf. Ég held að við ættum að tengja það saman þannig að það væru ekki bara ferðalög heldur væri líka hægt að nýta þetta á menningarviðburðum. Við vitum að þær greinar hafa orðið hart úti þannig að það gæti verið skynsamlegt. Við þurfum líka að skoða mjög alvarlega og beita því af fullum krafti, og um það eru viss fyrirheit í fjárlagafrumvarpinu, að fara í grænar fjárfestingar. Ég held að það sé mjög skynsamlegt að hjálpa fyrirtækjum, styðja við fyrirtæki sem vilja stíga stór græn skref og að þau fái fyrirgreiðslu til að gera það. Það hjálpar okkur í loftslagsmarkmiðunum og það skapar líka vinnu og framkvæmdir á vegum fyrirtækjanna að ráðast í slík verkefni.
Eitt af því sem mig langar að nefna til viðbótar þessu er tryggingagjald sem hefur verið talsvert til umræðu. Nú er búið að boða, og var partur af samkomulagi við Samtök atvinnulífsins, að lækka tryggingagjaldið heilt yfir um 0,25%. Ég leyfi mér a.m.k. hafa fyrirvara við að það hafi endilega verið skynsamlegast að gera þetta. Ég legg til að við skoðum mjög ítarlega að beita lækkun tryggingagjalds miklu frekar markvissar í átt að þeim greinum sem hafa orðið fyrir mestu áfalli. Ég held að við ættum líka að skoða mjög alvarlega að beita því þannig að það sé veittur afsláttur eða lækkun tryggingagjalds þegar fyrirtæki ráða inn til sín fólk af atvinnuleysisskrá. Þannig værum við að örva það og hvetja til þess að fólk fengi vinnu og fyrirtæki væru djarfari í því að ráða til sín fólk. Þetta yrðu tímabundnar aðgerðir. Það held ég að skipti miklu máli með margt af þessu, að við höfum tímabundnar aðgerðir.
Það hefur líka mikið verið talað um hvað væri skynsamlegt og óskynsamlegt að gera varðandi atvinnuleysisbætur. Ég held að í fyrsta lagi verðum við að tryggja að við gætum jafnræðis gagnvart fólki sem hefur misst vinnuna þannig að allir sitji við sama borð þar. Það er búið að ákveða að framlengja tekjutenginguna og við í Viðreisn höldum að skynsamlegt væri að stíga stærri skref og ákveða að framlengja hana alveg út næsta ár.
Annað sem ég held að væri mjög skynsamlegt að skoða er hvort leyfa eigi þeim sem eru á atvinnuleysisbótum að afla sér tekna án þess að það skerði bæturnar. Ég held að ég fari rétt með að nú um stundir sé frítekjumark, ef svo má kalla, 70.000 kr., sem menn geta aflað sér í tekjur. Ég held að það ætti að auka þetta, þrefalda það a.m.k. Og hvað vinnst með því? Jú, fólk er þá að gera eitthvað, það aflar meiri tekna. Ég held að það sé líka skynsamlegt vegna þess að margt fólk sér ekki fram á að geta horfið til fyrri starfa, vill búa sér til eitthvert nýtt, reyna fyrir sér í einhverju nýju, hefur þá meira svigrúm til að vinna að þeim hugðarefnum sínum.
Herra forseti. Það er auðvitað margt sem er hægt að segja og tala um viðfangsefni okkar í fjárlaganefnd og síðan Alþingis í því að búa fjárlögin sem best úr garði þannig að þau komi sem flestum vel. Ég vil leggja áherslu á, eins og ég gerði að umtalsefni fyrr, að við reynum að vinna þetta saman. Gerum þetta saman ef menn meina það sem sagt er, að það þurfi að virkja Alþingi og að skynsamlegustu leiðirnar finnist með samtali og samráði og samvinnu. Ég held að við ættum að þræða þá leið.
Ég vil undir lok þessarar ræðu minnast aðeins á næturhagkerfið. Næturhagkerfið er ekki svarta hagkerfið, eins og einhver gæti kannski haldið, heldur er það hagkerfi þeirra greina sem fyrst og fremst eru að störfum á kvöldin og nóttunni. Þetta eru alls konar skemmtistaðir, barir, veitingahús og lista- og menningarstarfsemi af ýmsu tagi. Þessi starfsemi hefur orðið fyrir miklum búsifjum og stundum finnst manni öðrum þræði að menn líti þannig á að þessi starfsemi sé þeirrar gerðar að það sé ekki mikil samúð með því að koma þeim til aðstoðar. Ég held þetta sé alrangt. Þetta er mjög stór og mikilvægur þáttur í efnahagslífinu og það er líka mjög stór og ríkur þáttur í því að fólk yfirleitt haldi heilsu, ekki síst geðrænni heilsu, að það geti notið skemmtanar af ýmsu tagi. Þar held ég að við getum gert meira. Það er ekki sérstaklega gleðilegt fyrir þá sem reka veitingahús og bari, sem eru meira og minna búin að vera lokuð eða hálflömuð, að fá þau tíðindi að nú eigi að hækka á þeim áfengisgjaldið. (Forseti hringir.)
Að svo mæltu er ég viss um það og trúi því og treysti að við (Forseti hringir.) munum eiga mjög góða samvinnu í fjárlaganefnd við að gera þessi fjárlög eins góð og nokkur kostur er.