fjárlög 2021.
Herra forseti. Sem betur fer er ekki mjög langt síðan atvinnuleysisbætur voru hækkaðar og það skiptir miklu máli. Sömuleiðis hefur tekjutengda tímabil atvinnuleysisbótanna verið lengt. Þetta eru tvær aðgerðir sem skipta gríðarlega miklu máli fyrir þá sem eru atvinnulausir. Ég er þeirrar skoðunar að þegar kemur að örorkulífeyriskerfinu skipti máli að ná utan um það að kerfið sé þannig að hægt sé að bæta kjör þeirra sem hafa eingöngu greiðslur frá Tryggingastofnun sér til framfærslu.
Ég sá á þingmálaskrá að hæstv. félagsmálaráðherra mun leggja fram frumvörp þar sem farið verður í kerfisbreytingar á kerfinu vegna þess að það skiptir svo miklu máli hvernig peningarnir dreifast inn í kerfið til að þeir komi þeim að gagni sem hafa lægstu tekjurnar. Það skiptir máli þegar við tölum um að hækka greiðslurnar vegna þess að þær eru gríðarlega lágar, sérstaklega hjá þeim sem eru eingöngu með tekjur frá Tryggingastofnun og ekkert annað sér til framfærslu. Það eru sem betur fer ekki allir öryrkjar sem hafa það slæmt. Við þurfum að sjá hvernig aðrar breytingar, sem hafa verið á kerfinu, hafa gagnast fólki, t.d. skattkerfisbreytingar. Ég tel því að þar eigi áherslan að vera. Við þurfum að ná til þeirra sem hafa lægstu bæturnar.