fjárlög 2021.
Hæstv. forseti. Við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson erum sammála um að það sé skynsamleg og rökrétt hagfræði að leyfa bótakerfunum og skattkerfunum að virka með sjálfvirkum hætti og af krafti í gegnum ríkisfjármálin, þannig að ég ætla ekki að paufast við þann þátt. Það þarf þó alltaf að taka ákvörðun um að hreyfa ekki við því. En hvernig það er gert skiptir líka máli og ég tek undir með hv. þingmanni núna að það skiptir máli í þeirri umræðu sem fram undan er og þeim ákvörðunum sem teknar eru. Þegar við vorum á vormánuðum að afgreiða fjárauka þá vorum við til að mynda að fara í aðgerðir, hlutastarfaleiðina, og þar setjum við miklar fjárhæðir sem koma af enn meiri krafti með þeim tilfærslukerfum sem eru til staðar. Það setur enn aukinn kraft í gegnum ríkisfjármál. Jákvætt dæmi um hvernig það er gert er lenging á tekjutengingartímabili atvinnuleysisbóta sem mun líka virka með sambærilegum hætti.
Það sem vantar kannski upp á til að fylla þessa umræðu er þegar við rekum ríkissjóð með þetta miklum halla og talandi um að það snúist bara um hvernig, þá er auðvitað í þessu 1.000 milljarða útgjaldaumfangi, þegar tekjurnar eru bara 700 milljarðar, hægt að velta fyrir sér: Hvernig eigum við að mæta því til framtíðar og huga að grunngildum í lögum um opinber fjármál? Þá er ég að vísa til sjálfbærni, stöðugleika o.s.frv.