151. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[18:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er einmitt nákvæmlega þar sem gagnrýni mín byrjar, hver áhrif einstakra ákvarðana eru. Við þurfum að vita það til að vita hvaða ákvarðanir við eigum að framlengja. Erum við að framlengja t.d. tekjutengingu á störf sem koma ekki aftur fyrr en 2023? Markmið stjórnvalda er að fá 2 milljónir ferðamanna hingað 2023 en ekki 2026. Það er sviðsmyndagreiningin í fjármálaáætluninni sem lýsir því að ef það gerist ekki, þurfi að fara í niðurskurð eftir það. Þetta er það sem ég sé úr fjárlagafrumvarpinu.

Það sem ég sé hins vegar ekki er sú uppbygging sem hv. þingmaður, formaður fjárlaganefndar, vísaði í til að gera ríkissjóð sjálfbæran aftur. Ég sé 35 milljarða í sérstakar mótvægisaðgerðir beint úr fjármálaáætlun, beint úr fjárlögum. Ég sé ekki hvernig þeir 35 milljarðar eiga að hjálpa okkur að verða sjálfbær aftur á tímabili fjármálaáætlunar. Það er ekkert útskýrt. Það er hluti af vandanum sem ég hef alltaf verið að gagnrýna hérna. Það vantar helvítis kostnaðar- og ábatagreiningar — afsakið orðbragðið, en ég er búinn að segja þetta svo oft að það er orðið viðeigandi. Án þeirra getum við ekki sagt að þessi aðgerð sé betri en hin aðgerðin. Og þegar við erum með takmarkað fjármagn, sérstaklega núna, við erum að taka ákvarðanir um að auka hallann um 50 eða 100 milljarða, þá skiptir máli að aðgerðin sem við veljum borgi upp þann halla í kjölfarið, af því að hún á að vera arðbær aðgerð. En án þess að vera með þá greiningu erum við bara að giska. Enn og aftur erum við að giska.