fjárlög 2021.
Hæstv. forseti. Við erum að ræða hér frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2021. Í andsvörum er tíminn tvisvar sinnum tvær mínútur og ég var að ljúka andsvari við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson og væri freistandi að halda áfram þeirri umræðu. Ég heyri að hv. þingmaður hefur beðið um andsvar þannig að ég kallaði þetta yfir mig, hæstv. forseti.
Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fór ágætlega yfir efni frumvarpsins í framsögu sinni og ég vil nú nefna það hér, sem margir aðrir hv. þingmenn hafa nefnt í umræðunni fyrr í dag, að það er kannski sérstakt, við þær aðstæður sem við erum að kljást við, að við ræðum samhliða fjárlagafrumvarpinu endurskoðun fjármálaáætlunar fyrir árin 2021–2025. Sú umræða fer reyndar fram á morgun en við munum í kjölfarið fjalla um þessi mál til afgreiðslu bæði í þinginu og hv. fjárlaganefnd. Þannig má segja að hið hefðbundna stefnumörkunarferli — stefna, áætlun, fjárlög — fari úr skorðum. Það er að vissu leyti bagalegt en það dregur líka fram þær alvarlegu aðstæður sem við erum að kljást við og kannski einn angi af því ástandi sem við búum við og erum að takast á við.
Í þessari umræðu í dag, sem er að mörgu leyti mjög góð, hrópar einhvern veginn á mann að stærsti óvissuþátturinn er í raun og veru veiran sjálf og afleiðingar hennar, sá grýtti farvegur sem við erum að feta hér um sóttvarnir og þá heilbrigðisógn sem fylgir veirunni og svo þær efnahagslegu afleiðingar sem ákvarðanir henni tengdar hafa. Að því leyti má segja að faraldurinn raski mjög mörgu og sé þá í raun stærsti efnahagslegi óvissuþátturinn og það litar um leið stefnumörkunina og fyrirætlanir fyrir fjárlagaárið 2021 og í miklu meira mæli, vil ég meina, en þær efnahagshorfur og -spár sem venjulega búa að baki og er auðvitað fjallað um í greinargerðinni með frumvarpinu.
Þegar kemur að faraldrinum er hvorki um að ræða efnahagshorfur sem eru mælanlegar með nokkuð fyrirsjáanlegum hætti né erum við að horfa á forsendur fjárlaga sem við erum vön að horfa til sem eru mælanlegar og byggjast á spá um helstu hagstærðir landsframleiðslunnar, um heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfinu, staka þætti sem mynda heildareftirspurnina, um einkaneyslu, samneyslu, fjárfestingar, útflutningstekjur og innflutning. Vissulega eru þær til staðar en óvissan er meiri en oftast áður og meiri en ég man eftir.
Hér er um að ræða, talandi um forsendur, misdökkar sviðsmyndir og gríðarlega tímatengda óvissu. Tíminn sem líður verður í raun og veru óræð stærð sem ræður úrslitum um hversu mikil og langvinn þessi kreppa verður. Við verðum að tala um kreppu vegna þess að niðursveiflan er það snögg og djúp og varir í einhvern tíma sem við getum ekki sagt til um. Þess vegna er óvissa um áhrifin á þessar hagstærðir framleiðslunnar og þá hagvísa sem við styðjumst við sem mælikvarða á gang efnahagslífsins, um hagvöxt, atvinnustig, atvinnuleysi, verðlagsþróun og væntingar. Sviðsmyndirnar draga þó mjög skýrt fram þá grafalvarlegu stöðu og tekjufall atvinnugreina, rekstraraðila, sveitarfélaga og svo ríkissjóðs sem birtist í þessu fjárlagafrumvarpi.
Ég held, virðulegi forseti, að við verðum að leitast við að virða þessar kringumstæður, ef svo má segja. Þá vil ég vísa til þess þegar við tökum ákvarðanir til að mæta stöðunni hvað best. Ég heyri það bara á umræðunni og þessu samtali sem við höfum átt hér í dag — við förum svolítið til þess tíma þegar við vorum að afgreiða fjáraukalagafrumvörpin til að bregðast við stöðunni — að við vorum öll sammála um að hér þyrfti að bregðast sterklega við með ríkisfjármálunum og nýta þá sterku stöðu sem ríkissjóður var vissulega kominn í og byggðist upp á undanförnum árum, án þess að ég ætli kannski að fara að rekja það. En eftir að við fórum í þessar aðgerðir sem voru yfir 100 milljarðar í þremur fjáraukalagafrumvörpum, mjög óvenjulegt, verðum við að viðurkenna þann vanmátt sem felst í því að hafa ekki allar upplýsingar tiltækar og til grundvallar ákvörðunum, hvað þá að geta spáð fyrir um hvar, hvenær og hvernig þróunin verður.
Við erum í þriðju bylgju, sem kallað er, faraldursins og aukið álag er á heilbrigðiskerfið. Það er þetta sem ég er að tala um og við þurfum að virða þessar kringumstæður. Veiran er í þessu tilliti, eins og einhver góður maður orðaði það síðast í dag, ófyrirsjáanleg og ósanngjörn. Svo var einn góður þjálfari sem sagði þegar hann kom úr sóttkví að hún væri bröndótt og brögðótt. Þetta er einhvern veginn það sem við erum öll að kljást við. Samt erum við aðeins að reyna að togast á um það hvað er nóg án þess að vita nákvæmlega og hafa allar upplýsingar um það hvað liggur að baki og hversu langt við eigum að ganga með fyrirmæli í lögum um opinber fjármál, um það hvaða grunngildi við eigum að hafa til hliðsjónar.
Ég held að við verðum að virða þessar kringumstæður með tilliti til ríkisfjármálanna og hvernig við beitum þeim til að verja efnahag heimila og fyrirtækja og verja viðkvæma hópa samfélagsins. Við þurfum að feta okkur áfram í þessu, halda einhvers konar jafnvægi á milli sóttvarna og efnahagslegra áhrifa sem þær valda. Við höfum séð, og m.a. hefur það verið dregið fram í línulegu samhengi, hvernig harðari sóttvarnaaðgerðir hafa mikil áhrif á efnahagsumsvifin til lækkunar, um leið og við þurfum að hlífa og halda hagkerfinu gangandi með einhverjum hætti þannig að það hafi skjól og það er kannski rétta orðið, að tryggja að hagkerfið haldi áfram. Það er ekki gott orð að það malli en ég ætla að nota hér vegna þess að við erum með fjölmörg fyrirtæki þar sem eftirspurnarfallið er gríðarlegt, tekjufallið samhliða afar mikið og við erum að reyna að halda sjó til að hafa þrótt í viðspyrnuna þegar þar að kemur að heimurinn færist í eðlilegra horf.
Þegar Covid-19 heimsfaraldur kom hingað voru fyrstu viðbrögð á vormánuðum og inn í sumarið að verja störf og versnandi lausafjárstöðu þar sem allir sameinuðust um að mæta snöggu tekjufalli, versnandi lausafjárstöðu og passa upp á greiðsluhæfi fyrirtækjanna sem halda utan um störfin. Þetta voru eðlileg viðbrögð sem birtust í aðgerðum eins og hlutastarfaleið og greiðslufrestun og fyrirtæki í fjármálaþjónustu voru með á þeim vagni. Ég kom inn á að traust staða ríkissjóðs gerði það að verkum að við brugðumst óhikað við. Það er mikilvægt. Með trausta stöðu er hægt að bregðast óhikað við þrátt fyrir að óvissa sé mikil. Markmiðið var þá að fleyta okkur áfram og í gegnum skaflinn, eins og það var gjarnan orðað, í von um að um skammvinnan faraldur væri að ræða. Ég held að okkur hafi ekkert endilega órað fyrir því á þeim tímapunkti að við yrðum hér í októbermánuði að ræða samhliða fjárlög og fjármálaáætlun og værum í þriðju bylgju faraldursins með þeim ógnvekjandi tölum sem við sjáum í fjölda smita dag frá degi. Ég held að ekkert okkar geti fullyrt hvaða aðgerðir verði nægar, hvort heldur á sóttvarnahliðinni eða efnahagshliðinni. Þetta er einhvers konar jafnvægi sem ég get í það minnsta ekki fullyrt neitt um en við erum að reyna að ná í þessu fjárlagafrumvarpi og í fjármálaáætlun til næstu ára.
Þar finnst mér lög um opinber fjármál hafa sannað gildi sitt. Hið hefðbundna ferli er að við höfum stefnu sem við ætluðum ekkert að breyta á heilu kjörtímabili en höfum nú í tvígang breytt, sem dregur fram hvað við höfum verið að kljást við, tilneydd í það minnsta við þessar kringumstæður. Við reynum að halda hringrás stefnumörkunar þótt við séum að ræða samhliða hér fjármálaáætlun sem byggist á stefnumiði og þá ítarlegri markmiðum um það hvaða aðgerðir eigi að fara í og svo fjárlögin, hvar þessar aðgerðir, framkvæmd markmiðanna birtist. Þannig að við erum þó að reyna að virða það með því að fresta fjármálaáætluninni, horfa inn í framtíðina og horfa á það hvað við þolum. Hvað getum við gert? Hversu langt getum við gengið með þó þann halla sem blasir við okkur akkúrat nú inn á næsta ár?
Ég held að þetta samtal um það hvenær nóg sé nóg muni halda áfram. Í umfjöllun okkar í hv. fjárlaganefnd verðum við að skoða það út frá málefnasviðunum. Ég ætla ekki í þessari ræðu, hæstv. forseti, að fara inn á einstök málefnasvið eins og þau birtast í fjárlagafrumvarpinu, það geymi ég inn í þá umfjöllun og umræðu sem er fram undan í nefndinni og í samtali við þá aðila sem koma til með að gefa okkur umsagnir um málið.
Það má segja, ef maður reynir að setja þetta í einhvers konar samhengi, að þriðjungurinn af því þjónustustigi sem við höfum byggt upp, það umfang fjárlaga sem hér birtist, er tekinn að láni. Það má orða það þannig af því að við höfum aukið útgjöld. Hv. þm. Björn Leví Gunnarsson taldi það nú bara sjálfsagðan hlut að auka útgjöld til heilbrigðismála af því að það hefði byggst upp það mikil skuld á umliðnum árum við þá innviði sem byggja upp það kerfi. Ef við tökum útgjöld til heilbrigðismála, velferðarmála og menntamála, og það eru kannski þessi grunnkerfi sem við virðum öll sem erum í pólitík, og bætum vaxtagjöldunum við sem hljótast af þessum skuldum, þá eru það nokkurn veginn þær tekjur sem við horfum fram á næsta fjárlagaári. Þetta nær ekki helmingnum af málefnasviðunum sem við erum að fjármagna og það eru um 15 málefnasvið sem rúmast innan þessara sviða, heilbrigðisþjónustu, velferðar- og mennta- og menningarmála, af 35 málefnasviðum. Þá eru tekjurnar búnar þannig að allt annað, öll önnur málefnasvið, allt annað sem við erum að gera — við erum að taka pósitífa ákvörðun um að viðhalda því útgjaldastigi sem er í gildandi fjármálaáætlun — er tekið að láni. Allar þær Covid-aðgerðir og allt það sem við tökum ákvarðanir um að gera í framhaldinu verður tekið að láni. Er það skynsamlegt? Er það rökrétt í þessar kringumstæður? Alveg örugglega. Ég er sannfærður um það. En við skulum samt sem áður horfa á það í þessu samhengi.
Á móti myndi ég vilja segja, þegar við virðum kringumstæðurnar, að þá má sýna því skilning að ný útgjöld takmarkist við mótvægisráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Það stendur hér í greinargerð á bls. 94 með frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Útgjaldamál af öðrum meiði mun þurfa að fjármagna innan gildandi ramma. Þetta markmið endurspeglast glöggt í frumvarpinu í því að útgjaldabreytingar frá núverandi fjármálaáætlun stafa fyrst og fremst af viðbrögðum við faraldrinum og afleiðingum hans, t.d. aukin útgjöld vegna atvinnuleysis, áhrif af tímabundinni lengingu tekjutengdra atvinnuleysisbóta og fjölgun nemenda í framhaldsskólum og háskólum.“
Þetta er dæmi um það hvernig stefnumörkunin við þessar aðstæður birtist í útgjöldum á málefnasviði. Á móti eru allar sértækar afkomubætandi ráðstafanir látnar bíða og ekki frekari aðhaldskröfur gerðar til málefnasviða ráðuneyta árið 2021 fremur en í ár. Að því leytinu er staðinn vörður um og mikil áhersla lögð á að standa vörð um tilfærslukerfin eins og lagt var upp með í gildandi fjármálaáætlun. Það er þetta sem ég er að tala um, hæstv. forseti, þegar ég tala um að við reynum að virða kringumstæðurnar. Ég er hins vegar fullviss um að við eigum eftir að greina mjög margt þegar kemur að málefnasviðum í vinnu sem fram undan er hjá hv. fjárlaganefnd og það er fjölmargt sem það hefur komið fram í umræðunni hér og ég get alveg tekið undir og við þurfum að skoða og greina. Ég ætla bara að rifja upp umsögn fjármálaráðs frá því í byrjun september við endurskoðun fjármálastefnu, gagnsæi er hér algjört lykilorð og að við verðum dugleg við það þótt við náum ekki utan um allar upplýsingar sem gætu leiðbeint okkur um það hvaða ákvarðanir er best væri að taka. Við drögum fram allar mögulegar upplýsingar sem hjálpa okkur við að taka rökréttar ákvarðanir um það hvernig megi verja lífskjörin, sem er auðvitað viðvarandi verkefni. En ég læt þetta nægja að sinni, hæstv. forseti.