fjárlög 2021.
Forseti. Við vorum í samræðum áðan sem við lukum á því að ræða hvernig við værum að giska á hvaða aðgerðir væru góðar og hvaða aðgerðir væru ekki góðar. Mig langaði þess vegna að spyrja hv. formann fjárlaganefndar: Hvað getum við gert til að fá stjórnvöld til að fara eftir lögum um opinber fjármál og láta okkur fá þær greiningar sem eiga að fylgja fjárlögum og fjármálaáætlun? Mér finnst það rosalega einföld spurning og er búinn spyrja hennar mjög oft. Ég skil ekki af hverju hún kemst ekki til skila og við fáum það sem við eigum að fá lögum samkvæmt. Ég ímynda mér alla vega að Alþingi gæti sagt: Stopp, við gerum ekkert meira. Við getum ekki tekið neinar ákvarðanir um það hvort við eigum að gera þetta eða hitt fyrr en við fáum þessar greiningar. En einhverra hluta vegna hefur Alþingi bara það fyrirkomulag að það er ýtt á takka: Þetta ætti bara að vera allt í lagi, við treystum á að það sé í lagi. En það hefur komið upp úr dúrnum að það sé nú bara ekki allt í lagi.
Ég hef áhuga á störfum nefndarinnar. Getum við kannski gert þetta pínulítið öðruvísi? Við þurfum ekki að fá alla umsagnaraðila til okkar til að segja okkur það sem stendur í umsögninni þeirra. Það væri mjög viðeigandi að við færum dálítið vel yfir umsagnirnar og myndum kannski senda út frekari spurningar um einstaka atriði í þeim eða ef eitthvað er virkilega flókið gætum við valið þá umsagnaraðila til að koma. Við gætum þá nýtt þann tíma sem nefndin annars hefur til að vera í þessum greinilega nákvæmu samræðum við ráðuneytin um það af hverju þessi aðgerð en ekki hin er svona góð til að komast út úr kófinu til framtíðar. Hvar er forgangsraðaði verkefnalistinn? Ef við sleppum ekki ráðuneytunum eins auðveldlega og ég held að við höfum gert alltaf hingað til (Forseti hringir.) þá fer kannski eitthvað að lagast.