fjárlög 2021.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir spurningarnar. Þær eru mjög góðar en ég bjóst við því að hv. þingmaður héldi áfram að ræða aðgerðir og hvernig við tökum ákvarðanir sem snúa að því að beita ríkisfjármálunum. Það snertir auðvitað spurningar hv. þingmanns um nefndina.
Hvað getum við gert til þess að kalla eftir upplýsingum? Þegar hv. þingmaður hélt sína ræðu, og fleiri hér í dag, skrifaði ég hjá mér að í sambandi við lista yfir arðbær verkefni þyrftum við að draga mjög skýrt fram af hverju þessi verkefni væru valin umfram önnur sem ekki væru valin. Ég held að það sé afar mikilvægt og tek undir það.
Það er eitt sem felst í raun og veru í spurningu hv. þingmanns. Það er að upplýsingarnar liggja bara oft ekki fyrir þegar við köllum eftir þeim. Stundum fáum við þær alls ekki. Það er mjög bagalegt. Ég get því miður ekki svarað því öðruvísi en svo að við verðum að halda áfram að vera samstiga í því mati hvaða upplýsingar eru nauðsynlegar og mikilvægar fyrir nefndina og býsna grimm í að draga þær fram.
Varðandi störf nefndarinnar og að undirbúa sig með frekari spurningar þá erum við í nefndunum auðvitað úr öllum flokkum og kann að vera að við horfum ólíkt á hlutina þegar við lesum umsagnir. Þá er nú kannski auðveldasta leiðin að leiða það bara áfram í samtalinu. Ég held að það sé afar mikilvægt að við eigum samtalið við umsagnaraðila og þá sem vilja koma til okkar og koma sjónarmiðum sínum sterkt á framfæri. En það er vissulega hægt að nýta tímann betur. Það er vissulega hægt. Ég skal reyna að svara þessu betur í seinna andsvari.