fjárlög 2021.
Herra forseti. Til umræðu er fjárlagafrumvarp fyrir árið 2021 í allri þeirri óvissu sem ríkir og öllu því ástandi sem ekki þarf að lýsa í mörgum orðum. Ég vil aðeins segja í upphafi að það er mikilvægt að við áttum okkur á því, og rétt að draga fram það sem hv. formaður fjárlaganefndar byrjaði á í sinni ræðu, að stærsta efnahagslega óvissan í öllu þessu ástandi núna er faraldurinn sem við glímum við. Það er ekki hægt að spá fyrir um hann. Ég held að okkur hafi ekki grunað í upphafi fyrstu aðgerða okkar að hann yrði jafn langvinnur. Út úr hagkerfinu eru horfin 8% af landsframleiðslunni, mikið verðmætafall í samfélaginu sem endurspeglast í tekjufalli ríkissjóðs.
Ég held að það sé mjög mikilvægt að við áttum okkur á því að staða ríkissjóðs, þótt hann komi vel undirbúinn inn í þetta efnahagsáfall, inn í þessa kreppu og þetta ástand, er mjög alvarleg þegar við horfum til lengri tíma. Það er ekki létt að horfa til þess að við séum að stuðla að því að skuldahlutfall ríkissjóðs hækki á tiltölulega stuttum tíma úr 30% af landsframleiðslu og upp í 50%. Þótt í samanburði sé íslenski ríkissjóðurinn í betri stöðu en ríkissjóðir margra annarra landa er þetta atriði sem við verðum alltaf að hafa í huga þegar við ræðum fjárlagafrumvarp næsta árs og ekki síður á morgun þegar við ræðum um fjármálaáætlun næstu ára.
Hvers vegna dreg ég þetta fram? Mér finnst á margan hátt að umræðan um fjárlagafrumvarpið frá því að það kom fram fyrir helgi og þangað til við komum til umræðunnar í dag, hafi batnað mjög mikið. Ég leyfi mér að segja þetta vegna þess að þegar fjárlagafrumvarp kemur fram og er kynnt hafa margir eðlilega miklar skoðanir á því og menn hafa uppi miklar yfirlýsingar en ég skynja á umræðunni í dag að hvar sem við stöndum í flokki þá horfum við framan í ískaldan veruleikann. Það er óvissan. Það er óvissan um hvað faraldurinn varar lengi og hvaða samfélag mun koma út úr þessum faraldri.
Við höfum haft það sem þungamiðju í öllum okkar aðgerðum að varðveita framleiðslutækin, að viðspyrnan geti orðið kröftug og vonandi tekst okkur það. En við vitum heldur ekki, virðuleg forseti, í hvaða ástandi við komum út úr þessum faraldri og ekki heldur hvernig heimurinn sjálfur mun bregðast við. Kannski erum við að horfa til tíma sem eru allt öðruvísi en þegar við stóðum hér á sama tíma í fyrra og ræddum fjárlagafrumvarpið fyrir árið sem nú er að líða og þær væntingar sem við höfðum þá. Við horfum mögulega framan í allt annan heim, allt annan veruleika þegar þessum faraldri lýkur eða við höfum lært að lifa með honum. Nú veit ég ekki hvort það verður hægt að segja að honum ljúki, heldur hvernig við ætlum að vinna með honum.
Ég held að ég dragi það út úr öllum þeim ræðum sem hafa verið fluttar í dag um fjárlagafrumvarpið að það er þetta sem við erum að fást við og er svo mikilvægt að við áttum okkur á.
Þá má aftur spyrja, og um það stendur umræðan eðlilega: Eru þetta réttu viðbrögðin sem birtast í fjárlagafrumvarpinu? Hér er haldið áfram að lækka tekjuskatt. Hér er 14 milljarða tekjuskattslækkun fest í sessi í lægsta tekjuþrepinu. Hér er lögð til lækkun tryggingagjalds. Hér er áfram lagðir til miklir fjármunir, sem samræmist þeirri fjármálaáætlun sem varð til fyrir ári og búið er að bæta í með fjáraukalögum, til fjárfestinga opinberra framkvæmda. Allt eru þetta atriði sem stuðla að því að við varðveitum kaupmátt, varðveitum samfélag og framleiðslutæki þannig að við getum haft öfluga viðspyrnu.
Við getum síðan haft margar skoðanir á því hvort það eigi að vera meira þarna eða minna hinum megin. En meginmálið er, rétt eins og hv. formaður fjárlaganefndar ræddi hér áðan, að þetta eru þau viðbrögð sem við leggjum upp með í dag og þannig verðum við að átta okkur á hvernig það spilast.
Eitt atriði sem ég hef hoggið eftir í umræðunni í dag og hefur verið nokkur rauður þráður hér er hvort þessi viðbrögð dugi. En þótt menn telji út úr fjárlagafrumvarpinu hvað margir milljarðar fari til þess að auka atvinnu og til að skapa viðspyrnu þá vil ég aðeins segja það að það verður aldrei ríkið eingöngu sem mun byggja upp atvinnuna. Ríkið getur stuðlað að sókn og verðmætasköpun því að það sem ríkissjóður horfir framan í, og veruleikinn er ískaldur þar, er að 100 milljarðar munu fara til atvinnuleysisbóta á tveimur árum. Ríkissjóður þarf fyrst og fremst á því að halda, eins og samfélagið allt, ekki bara ríkissjóður, að hér verði sú viðspyrna að verðmætasköpun komist í gang á nýjan leik. Ríkið mun aldrei eitt og sér standa fyrir því og þess vegna eru birtir aðrir hvatar í frumvörpum er tengjast fjárlagafrumvarpinu, eins og skattalegir hvatar til fjárfestinga auk annarra atriða til að liðka fyrir sókninni, gríðarlega mikilvægri. Við getum vafalaust ekki lagt skýran verðmiða á þá en þeir miða allir að því marki að við stöðvum þessa blæðingu sem allra fyrst. 100 milljarðar til atvinnuleysisbóta á stuttum tíma eru nefnilega gríðarlegur skellur.
Það er á annan hátt hægt að segja að í þessu fjárlagafrumvarpi og í fjármálaáætlun, sem við ræðum um á morgun og maður freistast til að gera hana eilítið að umtalsefni því að þetta eru það nátengd mál, er fjallað um framtíðarskuldasöfnun ríkissjóðs. Í fjármálaáætluninni er nefnilega tæpt á því að til að stöðva skuldasöfnunina miðað við þær hagspár sem nú liggja fyrir þurfi að ráðast í niðurskurð í opinberum rekstri til að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi á nýjan leik.
Hv. þm. Birgir Þórarinsson ræddi hér í dag að honum fyndist það langur tími að koma jafnvægi á ríkissjóð á fimm árum. Ég get alveg verið honum sammála um að það sé gríðarlega langur tími og ég hef reyndar þá trú að viðspyrnan geti orðið miklu kröftugri og öflugri ef mál skipast þannig. En stóra málið er þetta: Við horfum framan í það að ef efnahagurinn braggast ekki hraðar þurfum við að takast á við mikinn samdrátt á næstu árum. Það verður hið pólitíska viðfangsefni, eðlilega.
Nú höfum við þá sérstöku stöðu að eitt ár er eftir af kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar. Þess vegna segi ég að sú framsetning hjá ríkisstjórninni að setja fjármálaáætlun fram með þessum hætti; vekja athygli á því hvernig er hægt að stöðva skuldasöfnunina, hvernig hægt er að bregðast við með stýritækjunum, er ábyrg, án þess að útfæra hana í einhverjum smáatriðum því að það verður eðlilega viðfang þeirra sem starfa hér á næsta kjörtímabili.
Þetta er saman dregið eins og ég met umræðuna um fjárlagafrumvarpið í dag. Við getum að sjálfsögðu tínt til marga þætti í fjárlagafrumvarpinu sem við erum ánægð með og óánægð með út frá því hvar við stöndum í pólitíkinni og hvaða áhugamál og fyrir hvaða málaflokk hver og einn þingmaður brennur. En ég ætla að sleppa því og það verður mun ítarlegri umræða eins og oft í 2. umr. um fjárlagafrumvarpið. Ég vil loka þessu örstutta innleggi mínu með því að segja að staða ríkissjóðs er alvarleg og okkur ber að umgangast umræðuna um fjárlagafrumvarpið og fjármálaáætlun á morgun með það í huga að mestu máli skiptir að við getum aftur skapað atvinnu og skapað verðmæti á sama tíma og við notum sterka stöðu ríkissjóðs til að verja kerfin okkar, velferðarkerfið, menntakerfið og heilbrigðiskerfið, til að takast á við þennan vanda.