151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Það dylst engum að ástandið á Suðurnesjum er grafalvarlegt. Atvinnuleysið í landshlutanum er um helmingi meira en á höfuðborgarsvæðinu þar sem það er næstmest. Atvinnuleysi kvenna á Suðurnesjum var 21% í ágúst og 16,1% meðal karla. Í þessum tölum eru ekki þeir sem eru á uppsagnarfresti og ástandið á eftir að versna á næstu vikum.

Það er gríðarlegt áfall að missa vinnuna og getur dregið dilk á eftir sér. Gæta þarf sérstaklega að börnum atvinnulausra, skólagöngu þeirra, að þau fái nóg að borða og geti tekið þátt í skipulögðu frístundastarfi sem kostar peninga. Við vitum ekki hvenær faraldurinn gengur yfir en hitt blasir við hverjum þeim sem vilja sjá að þau sem missa vinnuna og fara á atvinnuleysisbætur verða að fá meiri stuðning frá stjórnvöldum og það verður að vinna miklu betur gegn atvinnuleysi, bæði karla og kvenna, einkum á svæðum sem verða verst úti. Það er kynjahalli á úrræðum stjórnvalda sem ná nær eingöngu til karlastarfa þó að atvinnuleysið sé ekki síður meðal kvenna. Og úrræði fyrir landshlutann sem á í mestum vanda skortir.

Hér eru nokkrar hugmyndir fyrir stjórnvöld að moða úr til að mæta alvarlegri stöðu Suðurnesja:

Bæta sveitarfélögum upp tekjutap og bregðast við vaxandi þörf íbúa fyrir félagsþjónustu, sjá til þess að allir fái sex mánaða tekjutengt tímabil en ekki bara sumir, hækka grunnatvinnuleysisbætur og lengja réttinn til atvinnuleysistrygginga, efla Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, einkum heilsugæslu og geðheilbrigðisþjónustu. Í Suðurnesjabæ búa um 3.500 manns. Þar rekur ríkið enga umönnunarþjónustu og bráð nauðsyn er þar fyrir dagdvalarrými fyrir aldraða. Allar menntastofnanir svæðisins þurfa aukið fjármagn til að taka á móti atvinnuleitendum sem vilja styrkja stöðu sína, það ætti að auka framlög til sóknaráætlana sveitarfélaga myndarlega, til menningarmála og stórefla uppbyggingarsjóðinn og ráðast strax í byggingu sjóvarnargarðs við slippinn í Njarðvík.

Ég er með fleiri hugmyndir fyrir stjórnvöld. Það þarf ekki að gera neitt annað en að grípa símann og ég mun fara yfir það með þeim.