störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á því að vísa í þingmálaskrá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra þar sem boðað er frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, sem snúa að þriðja geiranum. Það er í samræmi við tillögur starfshóps sem skilaði skýrslu um þetta efni og tillögum til að hvetja og styrkja skattalegt umhverfi þriðja geirans. Ég vil fagna þeim viðbrögðum hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að boða þetta frumvarp. Þetta er afar mikilvægt mál.
Það kemur jafnframt fram í fjárlagafrumvarpi sem við ræddum í gær að áætlað er að 2,1 milljarður fari í að styðja þriðja geirann. Þriðji geirinn er mjög fjölþættur og afar mikilvægur og ekki síst allt það sjálfboðaliðastarf sem fer fram í þeim geira. Það eru fjölmargar rannsóknir sem staðfesta að þetta styrkir uppvöxt barna og unglinga. Þátttaka í öllu skipulögðu íþrótta- og menningartengdu tómstundastarfi styður við uppvöxt þeirra og bætir lýðheilsu til lengri tíma. Það eru fjölmargar rannsóknir sem staðfesta þetta. Starfshópurinn skoðaði þó nokkuð hver staðan á þessu er í löndunum í kringum okkur og slíkur samanburður leiddi í ljós að víðast hvar væru skattalegir hvatar víðtækari en hér á landi. Hér er verið að bregðast við því, virðulegi forseti, og ég vil fagna því.