151. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2020.

störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Nú dregur til nokkurra tíðinda. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur tilkynnt í þingmálaskrá og fjölmiðlum að hún hyggist leggja fram frumvarp um að mannanafnanefnd verði lögð niður. Ég verð að segja að mér hugnast frumvarpið vel. Það er eins og mælt út úr mínum munni. Kannski er það vegna þess að ég vann að sama máli fyrir rétt um ári síðan. Það var mannanafnafrumvarp sem flutt var af þáverandi þingmanni og samflokksmanni mínum í Viðreisn, Þorsteini Víglundssyni. Það var kolfellt hér í þinginu á þeim tíma.

Nafn er nátengt sjálfsmynd og sjálfsvitund fólks og varðar fyrst og fremst einkahagi og persónurétt. Í núgildandi mannanafnalögum eru lagðar víðtækar takmarkanir á rétt fólks til að stýra þessum rétti, takmarkanir sem ekki verða rökstuddar með vísan til almannahagsmuna eða annarra hagsmuna sem réttlætanlegt er að byggja á í nútímasamfélagi. Fólki á að vera treyst til að ráða sjálft nafni sínu.

Munur frumvarpanna, herra forseti, er kannski helst sá að teljist nafn vera barni til ama var í frumvarpi Þorsteins gert ráð fyrir aðkomu barnaverndaryfirvalda en í frumvarpi ráðherra verður leitað umsagnar umboðsmanns barna. Sá er nú allur munurinn. Ég held reyndar að það séu litlar líkur á að foreldrar gefi börn sínum meiðandi nöfn. Allt að einu þá óska ég hæstv. ráðherra velgengni með hið ætlaða frumvarp og að henni takist að fullvinna það og leggja fram tímanlega svo að það geti fengið umfjöllun og afgreiðslu hér á þingi. Einnig óska ég þess að henni takist að koma því í gegnum ríkisstjórn sína án þess að það missi grundvallarmarkmiðið um að fólk ráði eigin nafni. Ég óska henni einnig sérstaklega velfarnaðar í því að koma málinu í gegnum eigin flokk en þar hefur brugðið við að menn séu frjálslyndir einungis í orði en ekki á borði.